Fyrri hálfleikur var alls ekki sannfærandi hjá ensku meisturunum en þeir gáfu þó ekki mörg færi á sér. Á móti kom að liðið skapaði sér ekkert sérstaklega mikið.
Heppnin hefur ekki alltaf verið í liði með Man. Utd í vetur og hún var svo sannarlega ekki í þeirra liði er Olympiakos komst yfir. Skot utan teigs sem fór í annan leikmann, breytti um stefnu og í netið.
Man. Utd byrjaði seinni hálfleik jafn illa og það lauk þeim fyrri. Það kom því ekkert sérstaklega á óvart er heimamenn bættu við marki.
Joel Campbell með glæsilegt skot utan teigs sem söng í netinu. 2-0 og Man. Utd í vondum málum. Þess má geta að Campbell er í láni frá Arsenal.
Man. Utd gekk ekkert að skapa sér færi í leiknum en níu mínútum fyrir leikslok rofaði aðeins til. Robin van Persie komst þá í dauðafæri en skot hans fór yfir markið.
Meira markvert gerðist ekki og Grikkirnir fögnuðu að vonum vel í leikslok.