Allgóð stemming var á Bessastöðum þegar bókmenntafólkið lagði undir sig þessar höfuðstöðvar forsetans, sem setti samkomuna. Þá flutti Egill Örn Jóhannsson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, stutta tölu og kynnti tilnefnda höfunda. Forseti Íslands kynnti niðurstöður dómnefndar og afhenti verðlaunin. Verðlaunahöfundar ávörpuðu gesti.

Það var fjögurra manna lokadómnefnd sem valdi verkin úr hópi fimmtán bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember á síðasta ári en þá voru fimm bækur tilnefndar í hverjum flokki. Lokadómnefndina skipuðu þau Guðni Kolbeinsson, Þorgerður E. Sigurðardóttir, Þóra Arnórsdóttir og Stefanía Óskarsdóttir, sem var jafnframt var formaður nefndarinnar.
Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk. Auk þess er verðlaunahöfum afhent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripir, hannaðir af Jóni Snorra Sigurðssyni á gullsmíðaverkstæði Jens; opin bók á granítstöpli með nafni verðlaunahöfundar og bókar hans.
Snorri Helgason flutti lög sín Kveðja af plötunni Autumn Skies og Verum í sambandi sem hljómsveitin Sprengjuhöllin gaf út.

Í tilefni 125 ára afmælis Félags íslenskra bókaútgefenda og 25 ára afmælis Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru nú veitt í fyrsta skipti verðlaun í flokki barna- og unglingabóka. Þær höfðu áður fallið undir flokk fagurbókmennta. Verðlaunin skiptust því nú í þrjá flokka sem hér segir. Eins og áður sagði hlaut Andri Snær þau, fyrstur manna, fyrir Tímakistuna, sem Mál og menning gaf út.
Verk Sjóns, sem tryggði honum verðlaunin er Mánasteinn – drengurinn sem aldrei var til en útgefandi er JPV útgáfa. Og bók Guðbjargar, sem varð til þess að hún hlaut verðlaunin í flokki fræðirita er Íslenska teiknibókin en hana gefur Crymogea út.
Tilnefningar
Þeir sem þurftu að lúta í gras gagnvart þeim þremur eru í flokki barna- og unglingabóka, en voru tilnefnd til verðlaunanna eru: Jóna Valborg Árnadóttir og Elsa Nielsen: Brosbókin. Útgefandi: Bókaútgáfan Salka, Sif Sigmarsdóttir:Freyju saga – Múrinn. Útgefandi: Mál og menning, Sigrún Eldjárn: Strokubörnin á Skuggaskeri. Útgefandi: Mál og menning og Vilhelm Anton Jónsson:Vísindabók Villa. Útgefandi: JPV útgáfa.
Í flokki fagurbókmennta voru tilnefnd, auk Mánasteins, þau Eiríkur Guðmundsson:1983. Útgefandi: Bjartur, Guðmundur Andri Thorsson:Sæmd. Útgefandi: JPV útgáfa, JónKalman Stefánsson:Fiskarnir hafa enga fætur. Útgefandi: Bjartur og Vigdís Grímsdóttir:Dísusaga – Konan með gulu töskuna. Útgefandi: JPV útgáfa.
Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlaunanna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis auk bókar Guðbjargar: Gísli Sigurðsson:Leiftur á horfinni öld – Hvað er merkilegt við íslenskar fornbókmenntir? Útgefandi: Mál og menning, Guðmundur Páll Ólafsson:Vatnið í náttúru Íslands. Útgefandi: Mál og menning, Jón Gauti Jónsson: Fjallabókin. Útgefandi: Mál og menning og Sölvi Björn Sigurðsson: Stangveiðar á Íslandi og Íslensk vatnabók. Útgefandi: Sögur.

Stofnað var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 1989 en þá var Félags íslenskra bókaútgefenda, sem stofnað var í Reykjavík í janúar 1889, hundrað ára. Fyrsta árið var verðlaununum ekki skipt í flokka en tilnefndar alls 10 bækur. Fyrsti verðlaunahafinn var ljóðskáldið Stefán Hörður Grímsson sem hlaut verðlaunin fyrir bókina Yfir heiðan morgun. Árið eftir var tilhögun verðlaunanna breytt þannig að tilnefndar bækur skiptust í tvo flokka, fagurbækur annars vegar og fræðibækur og rit almenns efnis hins vegar. Þannig hafa verðlaunin haldist óbreytt þar til nú að við bætist flokkur barna- og unglingabóka á sama tíma og verðlaunin verða veitt í 25. skipti.
Íslensku bókmenntaverðlaunin 2012 hlutu Eiríkur Örn Norðdahl fyrir skáldsöguna Illsku og Gunnar F. Guðmundsson fyrir ævisöguna Pater Jón Sveinsson – Nonni.
Verðlaunahafar
1989 Stefán Hörður Grímsson
1990 Fríða Á. Sigurðardóttir og Hörður Ágústsson
1991 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson
1992 Þorsteinn frá Hamri og Vésteinn Ólason, Guðrún Nordal, Sverrir Tómasson
1993 Hannes Pétursson og Jón G. Friðjónsson
1994 Silja Aðalsteinsdóttir og Vigdís Grímsdóttir
1995 Steinunn Sigurðardóttir og Þór Whitehead
1996 Böðvar Guðmundsson og Þorsteinn Gylfason
1997 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson
1998 Hörður Ágústsson og Thor Vilhjálmsson
1999 Andri Snær Magnason og Páll Valsson
2000 Gyrðir Elíasson og Guðmundur Páll Ólafsson
2001 Hallgrímur Helgason og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
2002 Ingibjörg Haraldsdóttir og Pétur M. Jónasson, Páll Hersteinsson,
2003 Ólafur Gunnarsson og Guðjón Friðriksson
2004 Auður Jónsdóttir og Halldór Guðmundsson
2005 Jón Kalman Stefánsson og Kristín G. Guðnadóttir, Gylfi Gíslason, Arthur C. Danto, Matthías Jóhannessen, Silja Aðalsteinsdóttir, Eiríkur Þorláksson
2006 Ólafur Jóhann Ólafsson og Andri Snær Magnason
2007 Sigurður Pálsson og Þorsteinn Þorsteinsson
2008 Einar Kárason og Þorvaldur Kristinsson
2009 Guðmundur Óskarsson og Helgi Björnsson
2010 Gerður Kristný og Helgi Hallgrímsson
2011 Guðrún Eva Mínervudóttir og Páll Björnsson
2012 Eiríkur Örn Norðdahl og Gunnar F. Guðmundsson
2013 Sjón, Sigurjón B. Sigurðsson, Guðbjörg Kristjánsdóttir og Andri Snær Magnason