- Hefur þú alltaf haft áhuga á tísku?
Já, alveg síðan ég fór að geta tjáð mig. Ein af mínum uppáhaldsbernskumyndum er af mér þriggja ára í hörjakkafötum með stærðarinnar myndavél um hálsinn. Móðir mín átti stóran þátt í tískuáhuga mínum og var dugleg að klæða mig upp á þegar ég var barn. Hún setti mig meðal annars í afklipptar Levi's-gallabuxur sem er í tísku enn í dag.

Ég skrifa um allt sem mér dettur í hug en bloggið er persónulegt og ég legg mikið upp úr því að vera ég sjálf. Tíska er vissulega í aðalhlutverki, í alls kyns formi. Annars hef ég mörg önnur áhugamál og hef til dæmis ótrúlega gaman af eldamennsku sem ég deili gjarnan á blogginu.
– Hvaða hönnuðir eru í uppáhaldi?
Um þessar mundir er Isabel Marant í algjöru uppáhaldi og ég bíð ofurspennt eftir því að fatalína hennar fyrir H&M komi í búðirnar. Einnig þykir mér Stella McCartney sérstaklega elegant og Marc Jacobs alltaf skemmtilegur, svo fáein séu nefnd.
– Er einhver flík sem þú stenst ekki?
Ég virðist ekki fá nóg af tvíeykinu fallegri yfirhöfn og vel sniðnum buxum.
– Manstu skemmtilega tískuupplifun?
Það var eftirminnilegt þegar klaufabárðurinn ég náði að detta með tilþrifum á Marc Jacobs/Coca-Cola-samkomu í Lundúnum síðasta vor. Agalega hressandi að hrasa í gólfið og rífa niður bakgrunnsskiltið í leiðinni þegar verið var að taka af mér skvísumynd. Að pósa getur reynst erfitt, greinilega.
– Áttu þér uppáhaldsverslanir?
Ég er fastagestur hjá Weekday, Wood Wood, Støy Munkholm og Samsøe & Samsøe, skandínavískar og flottar.

Sennilega umfram þörf en ég reyni að taka skynsemina á þetta og hugsa mig vel og vandlega um áður en ég fjárfesti í flík, með misjöfnum árangri. Verandi búsett í Danmörku er þægilegt að geta skilað flíkum aftur í búðir og fengið endurgreitt fái maður bakþanka. Stundarbrjálæðiskaup geta þó komið fyrir besta fólk.
– Hvort verslar þú meira á Íslandi eða í útlöndum?
Fataverslanir á Íslandi eru margar hverjar glæsilegar þó svo ég heimsæki þær ekki oft. Hér á meginlandinu er samt algjörlega best að vera hvað fatakaup varðar; valmöguleikarnir og freistingarnar endalausar. Ég kaupi því nær allar mínar flíkur hér úti.
Skoðaðu tískublogg Pöttru hér.