Gengjastríðunum í Breiðholti er lokið Sunna Valgerðardóttir skrifar 6. júní 2013 07:00
Afbrotum í Breiðholti hefur fækkað um fjörutíu prósent á síðustu árum. Afbrotatíðni í hverfinu er orðin sambærileg við önnur hverfi höfuðborgarsvæðisins en Heimir Ríkharðsson og Jóhann Davíðsson, sem starfa báðir í rannsóknardeild lögreglunnar í Breiðholti og Kópavogi, segja glæpavæðingu hverfisins, bæði í fjölmiðlum og almennu tali, lífseiga mýtu. Ekki þurfi að gera annað en að rýna í tölfræðina til að sjá að svo sé.Ekkert öðruvísi en annars staðar „Þrátt fyrir að Breiðholtið sé eins margbreytilegt og raun ber vitni þá er hlutfallið hér orðið eins og annars staðar,“ segir Heimir. „En samt sem áður er hér margbreytilegasta þjóðlífið, bæði hvað varðar tekjur, þjóðfélagsstétt og kynþátt. Það hefur mikla sérstöðu.“ Mennirnir hafa báðir starfað lengi við löggæslustörf í Breiðholti en þeir voru áður í lögreglustöðinni í Mjóddinni, Heimir sem aðalvarðstjóri og Jóhann í hverfalöggæslunni. Jóhann segir hverfið hafa þróast mikið á síðustu tuttugu árum. „Í kringum 1990 var mikil hópamyndun meðal íbúanna en það hefur gjörbreyst. Hún er bara horfin,“ segir hann. „Um tíma komu líka upp vandamál á milli Íslendinga og útlendinga, en við lögðum mikla vinnu í að snúa það niður. Án þess að það sé allt okkur að þakka þá hefur það tekist.“ Margir óttuðust lögregluna Hann segir marga innflytjendur hafa komið hingað frá löndum þar sem mikill ótti var í garð lögreglunnar. „En við tókum á því, það gekk yfir og nú er þetta orðið mjög gott. Þau komu sum frá löndum þar sem löggan var ekki sanngjörn og brást kannski helst við loforði um peninga.“ Hafa þeir lent í því að fólk reyni að múta þeim? „Já, já, maður hefur lent í því. En það eru svo sannarlega ekki útlendingarnir sem reyna það.“ Heimir tekur undir þetta. „Það voru notaðir hnífar, vopn og steinar, það voru barsmíðar og það var setið fyrir mönnum. En þetta verður maður mun minna var við, enda náðum við á endanum trausti strákanna sem voru í þessu og þeir áttuðu sig á því að maður var með þeim en ekki á móti þeim,“ segir hann. Þessar ungu stúlkur keyrðu í rælni nálægt lögreglubílnum í Fellunum og voru að sjálfsögðu teknar tali fyrir að vera þrjár á einu hjóli og hjálmlausar í þokkabót. Þær lofuðu bót og betrun.Fréttablaðið/GVA Ofbeldið færist yfir á netið Spurðir hvort þeir upplifi að kynþáttahatur sé meira í Breiðholti en annars staðar segja þeir svo ekki vera. „Þetta er mest á Facebook og á netinu. Þá bendir maður foreldrum á það að það þurfi að huga að því,“ segir Jóhann. „En þarna eru oft mjög grófar hótanir, útúrsnúningar, sögusagnir og leiðindi sem er erfitt að eiga við. En það er auðvitað ekkert bundið við hverfi.“ Heimir segir glæpavæðingu Breiðholtsins mestmegnis hafa átt sér stað í fjölmiðlum undanfarna áratugi og það fari fyrir brjóstið á íbúunum að það sé eitthvað öðruvísi en aðrir staðir. Íbúarnir hafi fyrst og fremst áhyggjur af ímyndinni og fordómum í garð hverfisins.Stöðin í Breiðholti lögð niður Blaðakona og ljósmyndari slógust í för með lögreglumönnunum niður í Mjódd þar sem þeir heilsuðu upp á sína gömlu nágranna á Þjónustumiðstöðinni. Það var greinilegt að samstarfið hefur verið gott þar á milli, þar sem þeim var tekið fagnandi af öllum starfsmönnum. Árið 2009 var stöðin í Breiðholti lögð niður og hún sameinuð deild lögreglunnar í Kópavogi. Öll starfsemin færðist á Dalveginn og hafa íbúar kvartað yfir því að lögreglan sé síður sýnileg í hverfinu eftir sameininguna. „Við erum ekki langt frá hverfinu og sinnum því auðvitað, þótt starfið hafi vissulega breyst eftir hrunið,“ segir Heimir. Einn lögreglubíll er á vaktinni í Breiðholti allan sólahringinn og sinnir eftirliti og almennri gæslu, en Heimir bendir á að alhliða breyting hafi orðið á starfsemi lögreglunnar og því sem er krafist af henni á síðustu árum.Pabbinn kastaði síðasta molotov-kokteilnum sem tákni um friðIngvar Sverrisson.„Þetta var ein af mínum fyrstu vöktum, ég man vel eftir þessu. Þetta var mikill hasar. Þetta er gott dæmi um hópamyndunina sem var en er horfin í dag,“ segir Heimir. „Þetta var svo miklu yngra hverfi og svo hefur þjóðfélagið breyst. Ef við verðum varir við hópamyndun í hverfinu, eins og gerðist síðast árið 2005, þá komum við á staðinn, skerumst í leikinn og svo er unnið að því að brjóta þetta upp. Það hefur gengið vel.“ Ingvar Sverrisson er einn Breiðhyltinganna sem tók þátt í gleðinni 1983. „Sumir segja að þetta hafi byrjað á því að Fellaskóli tapaði einhverri keppni, en eftir því sem ég best veit var þetta þannig að nokkrir Fellastrákar voru að leika sér á leikskólalóð í Seljahverfi og þangað komu aðrir strákar og lömdu þá, en þá fóru þeir til baka og söfnuðu liði,“ segir Ingvar. „Það var stríðsástand hér í nokkra daga. Það keyrðu engir bílar, allt var þakið grjóti og „molotov-kokteilum var kastað á milli.“ Pabbi Ingvars, Sverrir Friðþjófsson, var forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Fellahellis á þessum tíma og markaði hann stríðslokin táknrænt sjálfur með því að kasta síðasta molotov-kokteilnum á götuna. „Hann logaði hérna um allt og það var tákn um að menn væru orðnir vinir,“ segir Ingvar. „En strákarnir myndu nú gera grín að mér núna fyrir að vera að segja þessar sögur. Ég var voðalega lítill slagsmálahundur í samanburði við þá.“
Fréttaskýringar Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu