Fékk risastóra holu í andlitið Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. maí 2013 06:15 Ivan Nincevic
Eitt ljótasta brot sem sést hefur í þýska handboltanum í áraraðir átti sér stað í leik Hamburg og Füchse Berlin á þriðjudag. Aðeins 37 sekúndum fyrir leikslok gerði Torsten Jansen, leikmaður Hamburg, sér lítið fyrir og skallaði Ivan Nincevic, leikmann Berlin, fast í andlitið. Hamburg var að vinna leikinn örugglega og hegðunin óskiljanleg. Nincevic lá eftir rotaður og fossblæddi úr honum. Í fyrstu var óttast að hann væri með brotið kinnbein en svo var ekki. Hann fékk þó alvarlega heilahristing og stóran skurð á andlitið. „Það var risastór hola á andlitinu á honum,“ sagði Igor Vori, leikmaður Hamburg, eftir leikinn en Nincevic fékk fimm sentimetra skurð í andlitið. „Ég er kominn með ör fyrir lífstíð. Þetta var hræðilegt fyrir fjölskylduna. Mamma mín fékk taugaáfall og eiginkona mín grét stanslaust,“ sagði Nincevic en hann lá lengi hreyfingarlaus á vellinum og tók síðan kippi sem litu illa út. Jansen hefur beðist afsökunar en hann á engu að síður langt bann yfir höfði sér.
Mest lesið Heilsan ástæða þess að Árni lætur af störfum Körfubolti Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Enski boltinn Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Fótbolti Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Handbolti Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus Fótbolti Sló átta ára dóttur sína eftir tap Sport Betur fór en á horfðist hjá Martin sem virtist illa meiddur Körfubolti Dagskráin í dag: Lokasóknin, Extra, píla, snóker og íshokkí Sport Ótrúlegur endir sá til þess að meistararnir eru enn ósigraðir Sport Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sjá meira