Hanna úr steypu 8. apríl 2013 14:30 Rúna Thors og Hildur Steinþórsdóttir nýttu sér íslenska framleiðslumöguleika og tækni við hönnun bekkjarins Kletts. Myndir/Eva Björk Ægisdóttir
Nýtt útihúsgagn, steinsteyptan garðbekk, unnu þær Rúna Thors vöruhönnuður og Hildur Steinþórsdóttir arkitekt, í samvinnu við FabLab á Sauðárkróki og Steypustöðina. Bekkurinn kemur á markaðinn nú í vor en Steypustöðin framleiðir bekkinn. Hann var frumsýndur á HönnunarMars. „Áhugi okkar beggja á steypu varð kveikjan að þessu samstarfi," segir Rúna. „Okkur þóttu líka þau form sem þegar eru sýnileg úr steypu, full ferköntuð en í steypunni felast miklir möguleikar, hún getur fylgt hvaða formi sem er." Rúna segir þær einnig hafa viljað sýna fram á þá möguleika sem eru fyrir hendi á Íslandi, bæði í tæknivinnslu og framleiðslu og hverju samvinna hönnuða og framleiðslufyrirtækja getur skilað. „Ef hægt er að sýna fram á hvað er hægt að gera hér kveikir það vonandi bæði í hönnuðum og innlendum framleiðendum um samstarf. Samvinnan við steypustöðina gekk frábærlega vel." Bekkurinn fékk nafnið Klettur og segir Rúna þær hafa sótt innblásturinn í náttúruna og einnig hafi þær viljað tengja áferðina á steypunni við náttúruna.Í steypunni felast miklir möguleikar hvað form varðar. Á hliðum bekkjarins má sjá textíláferð sem unnin var upp úr ljósmyndum af smágróðri.„Nemendur í Myndlistaskólanum í Reykjavík unnu fyrir okkur textíl upp úr ljósmyndum af lyngi. Textílinn var hægt að skanna inn hjá FabLab á Sauðárkróki og fræsa út í mót," útskýrir Rúna en áferðin kemur fram í hliðum bekksins. „Við gátum unnið módel af bekknum hjá FabLab en sjálft mótið var smíðað hjá Bátahöllinni á Hellissandi. Steypustöðin steypir í mótið og sér um framleiðslu á bekknum. Við hugsum hann bæði fyrir almenningsrými og í heimilisgarða en það er hægt að sitja á honum tvo vegu. Í framhaldinu er svo ætlunin að hanna fleiri vörur í kringum Klett; blómaker og minni sæti, stóla eða kolla og jafnvel borð," segir Rúna.Hægt er að tylla sér á bakið á bekknum. Hann er hugsaður bæði fyrir almenningsrými og heimilisgarða og er von á blómakerjum og fleiri vörum í stíl í framhaldinu.
HönnunarMars Mest lesið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Drengurinn sem dó Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið Fleiri fréttir Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Þetta eru drottningar tískuvikunnar í París Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Robyn í hönnun Sólar Hansdóttur Skilnaðarhringir slá í gegn: „Ég set minn á löngutöng“ „Ég fékk alveg gæsahúð þegar ég sá þetta“ Kjólasaga Brooklyns loðin Valentino er allur Ein heitasta stjarna í heimi Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum „Eins nakin og ég kemst upp með“ Sjá meira