Búist er við leiðindaveðri á landinu öllu í dag. Veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að von sé á snjókomu og slyddu núna fyrir hádegið á suðvestulandi og það muni snjóa víða inn til landsins.
Á Suðvesturlandi fer fljótlega í rigningu, líklega um hádegið. Vindur færist í aukana á Suðvesturlandi og einnig á Norður- og Austurlandi. Á Suðvesturlandi mun vindurinn ganga niður í kvöld og einnig mun draga úr úrkomunni.Von er á leiðindaveðri á morgun, suðvestanstormi og hvassviðri og rigningu á Suðvesturhorninu.
Færð á landinu
Vestir verða að mestu greiðfæriri um sunnanvert landið, allt frá Faxaflóa austur fyrir Djúpavog. Þó eru hálkublettir á fáeinum vegum, til dæmis á Mosfellsheiði og á kafla vestan Kirkjubæjarklausturs.
Hálka eða hálkublettir eru nú víða á vegum á Vesturlandi. Óveður er undir Hafnarfjalli.
Það er er einnig hálka eða hálkublettir allvíða á Vestfjörðum, einkum á heiðum og hálsum. Þoka er einnig á Steingrímsfjarðarheiði.
Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir mjög víða en hálka á Þverárfjalli, í Langadal og á Vatnsskarði.
Norðaustanlands er hálka á flestum vegum en þæfingsfærð á Dettifossvegi.
Á Austurlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja en að mestu autt með ströndinni.
Leiðindaveður í dag og á morgun
Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
