Vetrarfærð víða um land Jón Júlíus Karlsson skrifar 13. nóvember 2013 09:19 Snjór var á götum borgarbúa í morgun. Mynd/Valli
Það snjóaði víða á sunnanverðu landinu í nótt og í morgun. Færð er víða varasöm og eru ökumenn beðnir um að fara varlega. Snjókoma hefur verið á höfuðborgarsvæðinu í morgun og er hálka. Í tilkynningu frá Vegagerðinni þá er vetrarfærð í öllum landshlutum með hálku, snjóþekju, éljagangi og skafrenningi. Flughált er á Dynjandisheiði og óveður er í Öræfum. Hálka er á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi en snjóþekja á Suðurstrandavegi. Hálka og éljagangur er á Sandsskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka er á Mosfellsheiði og hálkublettir á Kjalarnesi og sumstaðar í uppsveitum. Hálkublettir eru austan Selfoss, þungfært er á Reynisfjalli en verið er að moka, snjóþekja er austan Víkur. Hálkublettir og óveður er í Öræfum. Á Vesturlandi er hálka á Snæfellsnesi en snjóþekja víðast á láglendi og einnig sumstaðar éljagangur. Snjóþekja og éljagangur er á Bröttubrekku og snjóþekja og snjókoma á Holtavörðuheiði. Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum á Vestfjörðum en flughált er á Dynjandisheiði. Hálka og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði og á Klettsháls. Búið er að opna norður í Árneshrepp. Á Norðurlandi vestra er víðast hvar hálka en snjóþekja er á Þverárfjalli. Á Norðurlandi eystra er snjóþekja og hálka á vegum og víða skafrenningur og éljagangur. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxnadalsheiði. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Hólasandi en Dettifossvegur er þungfær. Það er snjóþekja, hálka eða hálkublettir á vegum á Austurlandi og víða éljagangur. Hálkublettir og snjóþekja eru frá Fáskrúðsfirði og áfram með suðausturströndinni. Ökumenn eru beðnir um að fara varlega og aka samkvæmt aðstæðum.
Veður Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Fleiri fréttir Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Sjá meira