Hafís á Suðurskautinu í hámarki Guðsteinn Bjarnason skrifar 21. október 2013 10:45 Hafísinn umhverfis Suðurskautslandið mældist 19,47 ferkílómetrar seint í september. Mynd/NASA
Meðan hafísinn á Norðurskautinu bráðnar þá hefur hafísinn umhverfis Suðurskautslandið ekki mælst meiri frá upphafi mælinga árið 1981. Hafísinn við Suðurskautið náði því seint í september að þekja 19,47 milljónir ferkílómetra, og náði þar með að slá metið frá árinu áður, en einnig þá mældist hafísbreiðan stærri en nokkru sinni áður. Þetta kemur fram á mælingum bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA. Walt Meier, jöklafræðingur á Goddard geimrannsóknarstöðinni bendir þó á að munurinn á milli ára sé ekki mikill: „Jafnvel þótt þetta sé met, þá er það aðeins 3,6 prósentum meira en meðaltalshámark áranna 1981-2010,” segir hann í tilkynningu á vefsíðu NASA. „Það þýðir að munurinn á þessu ári og meðalári er sá að ísbrúnin náði að meðaltali einungis um 35 kílómetrum lengra út á þessu ári.” Ísbreiðan umhverfis Suðurskautslandið er jafnan stærst í september eða október á hverju ári, en dregst síðan saman og er minnst í febrúar eða mars. Vísindamenn hafa lengi vitað að hafísbreiðan umhverfis Suðurskautslandið hefur verið að stækka, þrátt fyrir hlýnun jarðar. Þetta hefur valdið þeim nokkrum heilabrotum en á móti kemur að jökulhellan ofan á Suðurskautslandinu sjálfu hefur verið að þynnast nokkuð hratt, rétt eins og jöklar víðast hvar annars staðar á jörðinni.
Loftslagsmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira