Umfjöllun: HK - ÍBV 28-37 Eyjamenn slátruðu HK Sigmar Sigfússon skrifar 19. október 2013 12:45
ÍBV slátraði HK-mönnum í Digranesinu, 28-37, í 5. umferð Olís-deildar karla í handbolta í dag.. Heimamenn áttu skelfilegan fyrri hálfleik og leikurinn tapaðist þar. Gestirnir byrjuðu vel í leiknum og komust fljótlega í þriggja marka forystu, 1-4, en þá vöknuðu HK-menn og jöfnuðu leikinn í, 4-4, á fimmtu mínútu. HK-ingar virtust lamast eftir þennan fína kafla hjá þeim og ÍBV gekk á lagið. Eyjamenn skoruðu sjö mörk í röð og staðan orðin, 7-18. Eyjamenn með ellefu marka forystu eftir 23. mínútna leik. Heimamenn að spila skelfilega og þá sérstaklega í sókninni þar sem þeir töpuðu hverjum boltanum á eftir öðrum. Eyjamenn refsuðu HK-ingum hvað eftir annað með hraðaupphlaupsmarki í bakið á þeim og forystan jókst. Þegar flautað var til hálfleiks voru Eyjamenn með tólf marka forystu, 12-24, og útlitið ekki gott fyrir heimamenn í HK. HK rankaði við sér í seinni hálfleik og spiluðu ágætlega á köflum. Eyjamenn rúlluðu á mörgum leikmönnum og minni spámenn fengu að spila. HK tókst ekki að komast aftur inn í leikinn og Eyjamenn sigruðu með níu mörkum. Andri Heimir Friðriksson og Theodór Sigurbjörnsson skoruðu báðir 9 mörk fyrir ÍBV í leiknum og þá varði Haukur Jónsson 21 skot í markinu, þar af eitt vítakast. Hjá heimamönnum var Garðar Svansson með 6 mörk og Björn Ingi Friðþjófsson varði 11 skot. Hann átti fínan leik í síðari hálfleik. ÍBV sýndi í dag að þeir eru með hörkulið og til alls líklegir í vetur.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira