Barcelona er með fullt hús stiga eftir 1-0 sigur á Malaga á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Bakvörðurinn Adriano Correia skoraði eina mark leiksins.
Barcelona lék án Lionel Messi sem er meiddur og náði í stigin þrjú þó ekki hafi verið sama flugeldasýning í boði og í fyrstu umferðinni þegar liðið vann 7-0 sigur á Levante.
Correia skoraði einni mínútu fyrir hálfleik og þar við sat. Malaga hefur tapað báðum leikjum sínum á leiktíðinni.
Barcelona marði Malaga
Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar

Mest lesið



Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð
Íslenski boltinn


Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð
Fótbolti



Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum
Handbolti

