Akureyri að semja við Serba Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 14. júlí 2013 20:00 FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Akureyri er að styrkja sig fyrir átök vetrarins í N1 deild karla í handbolta og er búið að komast að munnlega samkomulagi við hávaxna serbneska skyttu sem þykir ekki síst öflugur varnarmaður. Bjarni Fritzson og Heimir Örn Árnason þjálfarar Akureyri staðfestu þetta við Vísi nú í dag en vildu þó lítið segja um leikmanninn þar sem hann er ekki kominn með landvistarleyfi. Heimir fór að sjá leikmanninn spila og sá í heild fjóra leiki með honum. „Það sem skiptir mig máli er að hann getur spilað vörn. Þetta er flottur jaki, stór og mikill. Hinir strákarnir geta gutlað í sókninni,“ sagði Heimir Örn. Fyrir utan Serbann hefur Akureyri samið við þrjá nýja leikmenn í sumar. Kristján Orri Jóhannsson sem var markahæsti leikmaður Gróttu í 1. deildinni á síðustu leiktíð er kominn norður ásamt Þrándi Gíslasyni frá Aftureldingu og Gunnari Kristni Þórssyni frá Val. „Við höfum verið með 25 manna æfingahóp í sumar sem ég er mjög ánægður með,“ sagði Bjarni Fritzson. „Okkur hefur tekist vel að fylla í þau skörð sem við misstum úr eftir síðasta tímabil. Það vantar ekki unga handboltamenn á Akureyri en það vantar smá reynslu, þess vegna erum við að sækja þennan leikmann út,“ sagði Bjarni sem býst ekki við að fá fleiri leikmenn til liðsins fyrir tímabilið.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Sjá meira