Handbolti

Rúnar frábær í sigri Grosswallstadt

Rúnar Kárason.
Rúnar Kárason.

Íslendingaliðið Grosswallstadt vann lífsnauðsynlegan sigur, 28-23, á Balingen í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Liðið komst þar með upp að hlið Neuhausen en bæði lið eru í mikilli fallbaráttu. Neuhausen tapaði gegn Lemgo í kvöld.

Rúnar Kárason fór á kostum í liði Grosswallstadt en hann var markahæstur með sex mörk. Sverre Andreas Jakobsson spilaði vel í vörninni og lét aldrei reka sig af velli.

Emsdetten tapaði síðan fyrir Hamm-Westfalen, 35-32, í þýsku B-deildinni. Það kemur þó ekki að sök þar sem Emsdetten hefur þegar tryggt sér sæti í efstu deild.

Ernir Hrafn Arnarson komst ekki á blað hjá Emsdetten í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×