2.000 Toyotur þvegnar Finnur Thorlacius skrifar 10. maí 2013 10:30 Toyotur þvegnar
Á morgun, laugardag, 11. maí verður árlegur þjónustudagur hjá þjónustuaðilum Toyota víða um land. Toyotaeigendur eru hvattir til að koma milli kl. 11 og 15 og upplifa skemmtilega stemmningu á þjónustudeginum þar sem starfsmenn Toyota og hjálparkokkar sápuþvo bílana og þurrka. Þegar bíllinn hefur fengið sitt bíður grill og gos auk þess sem sumarglaðningur fylgir fyrir börn og fullorðna. Sýningarsalir verða opnir hjá söluaðilum þar sem skoða má það nýjasta frá Toyota. Toyotaeigendur geta rennt við á þjónustudeginum hjá Toyota á Akureyri, Selfossi og Reykjanesbæ, hjá Bifreiðaverkstæði KS á Sauðárkróki, Bílageiranum í Reykjanesbæ, Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur á Bæjarflöt og Skemmuvegi og Bifreiðaverkstæði Austurlands á Egilsstöðum. Arctic Trucks á Kletthálsi verður nú með í fyrsta sinn en fyrirtækið bættist nýlega í hóp viðurkenndra þjónustuaðila Toyota sem eru orðnir 12 talsins víða um land. Þá verður þetta í fyrsta sinn sem þjónustudagurinn er haldinn hjá Toyota Kauptúni eftir að fyrirtækið flutti í nýtt húsnæði á síðasta ári.
Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent