Formúla 1

Webber færður aftast á ráslínu

Birgir Þór Harðarson skrifar
Webber þurfti að skilja bílinn sinn eftir og fékk far með brautarverði.
Webber þurfti að skilja bílinn sinn eftir og fékk far með brautarverði.
Ástralinn Mark Webber þarf að ræsa aftastur í kínverska kappakstrinum í fyrramálið. Dómarar mótsins urðu að refsa honum þegar ekki tókst að taka nægilega stórt sýni úr eldsneytistanki Red Bull-bílsins.

Webber stöðvaði bílinn í miðri annari lotu tímatökunnar og gekk til baka inn á viðgerðarsvæðið. Liðið segir eldnseytisdælu hafa klikkað og Webber sagði strax eftir tímatökuna að hann væri ekki bjartsýnn með að hægt væri að sækja eldsneytissýni þegar svo stæði á.

Webber, sem náði fjórtánda besta tíma, mun því ræsa aftastur. "Eldsneytisþrýstingurinn féll svo ég gat ekki ekið til baka," sagði hann. "Ég þurfti að stoppa bílinn svo tímatakan var búin áður en hún byrjaði."

Í skýrslu dómara í Kína kemur fram að eldsneytið hafi verið búið þegar bíllinn var skoðaður í morgun. Red Bull hafi viðurkennt það. "Aðeins 150ml voru eftir af eldsneyti um borð. Var það ekki nóg til að fylla sýnisskylduna sem er einn lítri og koma bílnum inn á viðgerðarsvæðið með eigin afli."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×