„Geimskip“ Apple 240 milljarða yfir áætlun Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 9. apríl 2013 23:50 Tölvuteikningar af húsinu sýna eitthvað sem líkist helst geimskipi úr vísindaskáldsögu.
Steve Jobs kynnti byggingaráform sín um nýjar höfuðstöðvar tölvurisans Apple fyrir borgarráði Cupertino-borgar í Kaliforníu nokkrum mánuðum fyrir dauða sinn árið 2011. Nú eru tæplega tvö ár liðin og kostnaður við bygginguna er rokin upp úr öllu valdi þrátt fyrir að vera enn á hönnunarstigi. Áætlaður heildarkostnaður við byggingu hússins er talinn verða tæpir sex hundruð milljarðar þegar upp er staðið, og nú þegar er verkefnið komið 240 milljarða fram úr áætlun. Tölvuteikningar af húsinu sýna eitthvað sem líkist helst geimskipi úr vísindaskáldsögu, en fyrirhugað er að byggingin hýsi skrifstofur Apple, fyrirlestrarsal fyrir eitt þúsund manns, líkamsræktarstöð og bílastæðahús, svo eitthvað sé nefnt. Í miðjunni er svo gert ráð fyrir sannkölluðum paradísargarði með tjörnum og trjám. Alls munu um tólf þúsund manns starfa í þessari rúmlega 250 þúsund fermetra byggingu. Þessi himinhái kostnaður skýrist að einhverju leyti af sérsvisku Jobs, en ekki er eina einustu sléttu rúðu að finna í byggingunni. Þýskur glerframleiðandi vinnur hörðum höndum að þróun glersins, og talar hann um „sex kílómetra af bognu gleri" af tegund sem aldrei hefur verið framleidd áður. Hönnuðir byggingarinnar, Foster + Partners, kanna nú ýmsa sparnaðarmöguleika og áætlað er að geimskip Apple verði ekki tilbúið fyrr en í fyrsta lagi árið 2016.
Mest lesið Hætta við yfirtökuna Viðskipti innlent Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Viðskipti innlent Falsaði fleiri bréf Viðskipti innlent Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Viðskipti innlent Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent Þegar gott slúður í vinnunni gerir gagn Atvinnulíf Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Vilja „ósýnilegar“ stöðumælasektir burt Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent
Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent