Austurlensk áhrif skjóta reglulega upp kollinum í tískuheiminum, en þau verða mjög áberandi í sumartískunni þetta árið. Hönnunarhús á borð við Emilio Pucci, Carolina Herrera og Prada notuðust við ýmsar útfærslur af japönskum kimónóum, beittum sniðum, fíngerðu silki og þykkbotna skóm í vor- og sumarlínum sínum. Hver og einn hönnuður tileinkaði sér asísku áhrifin og útfærði í sínum stíl. Útkoman varð því mjög fjölbreytileg.