Formúla 1

Missti auga í F1-árekstri en má nú keyra á ný

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Maria de Villota.
Maria de Villota. Mynd/Nordic Photos/Getty
Maria de Villota, fyrrum æfingaökumaður í formúlu eitt, hefur fengið leyfi til þess að setjast á bak við stýrið á ný. Hún missti hægri augað í slysi í júlí í fyrra þegar hún var að prufa Marussia-formúlubíl í Cambridgeshire.

Maria de Villota fékk mikla höfuðáverka og meiddist illa í andlitinu í slysinu en hún er dóttir Emilio de Villota sem keppti í formúlunni á sínum tíma. Hennar formúludagar eru þó taldir.

„Þeir gáfu mér leyfi í síðustu viku til að fara að keyra á ný," sagði Maria de Villota við BBC. „Ég er aftur farin að geta metið fjarlægðir vel og mér líður eins og ekkert hafi gerst," sagði De Villota. De Villota er 33 ára gömul en hún viðurkennir þó að hún glími enn við höfuðverk og máttleysi vegna slyssins en hún hefur eytt síðustu sjö mánuðum í endurhæfingu á Spáni.

„Til að byrja með var erfitt að gera daglega hluti eins og að grípa lykla eða ná í vatnsglas. Núna gengur allt hinsvegar miklu betur," segir De Villota og bætti við: „Þegar allt er á botninn holft þá er mitt náttúrulega umhverfi í bílnum og ég er ánægðust þar. Ég hef saknað þess að keyra," viðurkenndi Maria de Villota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×