Meðallaun í norska olíuiðnaðinum 1,7 milljónir á mánuði 11. febrúar 2013 06:48
Meðallaun í norska olíuiðnaðinum samsvara því að hver starfsmaður þar sé með 1,7 milljónir króna á mánuði eða yfir 20 milljónir króna í laun á ári. Þetta eru þó ekki hæstu árslaun sem bjóðast í olíuiðnaðinum í þeim löndum sem vinna olíu. Ástralir eru nokkuð á undan Norðmönnum þegar kemur að launum í þessum iðnaði. Þar eru árslaunin nokkuð yfir 21 milljón króna. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðunni offshore en hún byggir á nýrri úttekt hjá vinnumiðluninni Hays Oil and Gas sem sérhæfir sig í ráðningu á fólki til olíuiðnaðarins hvort sem það eru verkamenn á olíuborpöllum, skrifstofufólk eða forstjórar einstakra fyrirtækja. Úttekt vinnumiðlunarinnar náði til 25.000 starfsmanna í olíuiðnaðinum um allan heim. Offshore ræðir við Matt Underhill forstjóra Hays Oil and Gas um launaþróunina í norska olíuiðnaðinum. Hann segir að miklar fjárfestingar á undanförnum árum í þessum iðnaði hafi skýlt Norðmönnum að miklu leyti fyrir áhrifum fjármálakreppunnar. Á móti hafi þetta valdið skorti á vinnuafli sem ýtt hafi undir launahækkanir.
Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá CCP Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira