

Af vísindalegri umfjöllun um verkan lyfja
Er hómópatía byggð á vísindum? Ég mun koma að því síðar. Lyfjafræði og verkun lyfja byggir þó tvímælalaust á sterkum grunni raunvísinda. Gott dæmi um forsendur lyfjameðferða eru rannsóknir læknanna Robert J. Lefkowitz og Brian K. Kobilka en þeir eru í fararbroddi þeirra sem rutt hafa braut lyfjaþróunar síðustu áratuga og uppskáru fyrir vinnu sína Nóbelsverðlaun í efnafræði fyrr á þessu ári. Með rannsóknum sínum hafa þeir varpað ljósi á samspil lyfja við viðtaka sína í mannslíkamanum af ótrúlegri nákvæmni þar sem efnabygging lyfjasameindar er látin falla að viðtaka sínum eins og lykill í skráargat. Þekkingin nær frá sameindum til verkunar. Tilraunir byggja á efnafræði, erfðafræði, sameindalíffræði, frumulíffræði og að lokum á klínískum rannsóknum.
Þannig verður til órofa samhengi vísindalegra aðferða sem leiðir stöðugt til markvissari og betri lyfja. Allt er þetta eins og önnur raunvísindi, byggt á tilraunum. Þekkingin er endurskoðuð í ljósi nýrra rannsókna og árangur er metinn með vísindalegri nákvæmni. Þannig hefur skilningur á eðli mannslíkamans og sjúkdóma leitt til framfara í læknisfræði sem valdið hafa byltingu í meðferð algengra sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma, krabbameina, gigtarsjúkdóma og einnig í því að lina einkenni eins og verki og bólgur. Þessar meðferðir hafa sannaða verkun. Það gildir um öll lyf að verkunum fylgja einnig aukaverkanir. Þær eru einnig rannsakaðar og þannig má að lokum með heildrænum hætti meta samspil verkana og aukaverkana.
Að skilja verkanir og aukaverkanir lyfja með sífellt nákvæmari hætti er þannig forsenda framfara. Önnur forsenda er sífellt betri skilningur á orsökum og eðli sjúkdóma. Þetta er ein ástæða þess að lyfjafyrirtæki leita í auknum mæli leiða sem varpað getað nýju ljósi á orsakir algengra flókinna sjúkdóma eins og geðsjúkdóma, Alzheimer-sjúkdóms auk annarra. Þannig kemur ekki á óvart að lyfjafyrirtækið Amgen hefur fjárfest 45 milljarða króna í íslensku fyrirtæki sem lagt hefur meira til skilnings okkar á erfðafræðilegum orsökum sjúkdóma en flestir aðrir á síðasta áratug. Þannig er ný þekking sem leiðir til skilnings orðin að raunverulegum verðmætum sem skipt geta máli í baráttu við sjúkdóma.
En á hvaða fræðilega grunni byggir hómópatía? Það er raunar erfitt að setja þann grunn í rökrænt samhengi. Samkvæmt Organon, fagfélagi hómópata nota þeir „svokallaðar remedíur, örefni sem í stórum skömmtum myndu kalla fram hjá heilbrigðu fólki svipuð einkenni og þeim er ætlað að bæta. Þær eru unnar úr jurta-, dýra- og steinaríkinu og eru notaðar það mikið þynntar að ekki er talað um þær sem eiginlegt efni, heldur hvata.“
Það þarf að gera meiri kröfu til orða en að þau hljómi vel, sérstaklega ef þeim er ætlað að skapa fræðilegan grunn. Gagnrýnin hugsun krefst gagnrýninna spurninga. Hvað eru remedíur? Þær eiga uppruna í náttúrunni líkt og fjölmörg lyf. Síðan eru þær þynntar út þangað til engin eða nær engin sameind er eftir í lausninni. Lausnin á síðan samkvæmt óútskýrðum hætti eða „minni vatnsins“ að miðla áhrifum. Þessi orð hljóma því eins og töfrar. Fræði hómópata eru í vísindalegri mótsögn við þekkingu okkar í efnafræði, eðlisfræði og líffræði. Ef fræðigrunnur hómópata væri sannur og raunvísindin byggð á sandi, væri um algera umbyltingu að ræða. Kennihöfundar slíkra fræða ættu þá skilið Nóbelsverðlaun, og það fleiri en ein. Sú er enn ekki raunin. Það kemur því ekki á óvart að rannsóknir á hugsanlegri gagnsemi slíkra remedía til meðferðar hafa engum árangri skilað umfram það sem búast mætti við fyrir tilviljun. Þessu eru gerð góð skil í nýlegri skýrslu sem unnin var fyrir breska þingið (sjá: http://www.publications.parliament.uk/pa/cm200910/cmselect/cmsctech/45/45.pdf).
Samkvæmt öllum viðurkenndum skilgreiningum eru svokölluð fræði hómópata því ekki vísindi. Þau byggja ekki á tilraunum sem eiga stoð í raunheimum og það má því með sterkum rökum kalla þau gervivísindi, hjátrú eða ýmislegt annað. Þeir sem selja sjúklingum slíka vöru gera það á eigin ábyrgð, en í mínum huga kallast „remedía“ ekkert annað en kötturinn í sekknum.
Skoðun

Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna
Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar

Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi!
Rakel Ýr Isaksen skrifar

Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar
Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar

Samkeppnin tryggir hag neytenda
Hanna Katrín Friðriksson skrifar

Stóðhryssur ekki moldvörpur
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Við getum gert betur
Einar Bárðarson skrifar

Tími til að notast við réttar tölur
Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar

Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur?
Valur Elli Valsson skrifar

Ábyrg stefna í útlendingamálum
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar

Týndu hermennirnir okkar
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Gerist þetta aftur á morgun?
Ísak Hilmarsson skrifar

Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu?
Helen Ólafsdóttir skrifar

Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar
Jón Daníelsson skrifar

Að reikna veiðigjald af raunverulegum aflaverðmætum
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Fréttir af baggavélum og lömbum
Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Auglýsingaskrum Landsvirkjunar
Stefán Georgsson skrifar

Öryggi og varnir Íslands
Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland skrifar

Takk Trump!
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Fíllinn á teikniborði Landsvirkjunar
Soffía Sigurðardóttir skrifar

Tími til að staldra við
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Hvar er fyrirsjáanleikinn, forsætisráðherra?
Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar

25 metrar í Fannborg
Hákon Gunnarsson skrifar

Krossferðir - Íslamófóbía - Palestína
Kristján Þór Sigurðsson skrifar

Gefum heimild fyrir kyrrð og kærleik
Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar

Frumvarp til ólaga
Jón Ásgeir Sigurvinsson skrifar

Hervirki í höfuðborg - Svefngenglar við stjórnvölinn
Örn Sigurðsson skrifar

„Drifkraftur að óöryggi og óvissu“
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Klerkaveldi, trú og stjórnmál
Sigurður Árni Þórðarson skrifar