

„Þetta er fáránlegt og algjör snilld,“ segir Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona Of Monsters and Men.
Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu þá sendu Nanna Bryndís og félagar í hljómsveitinni Of Monsters and Men frá sér stuttskífu í gegnum vefverslun iTunes í desember.
Nýjasta plata íslensku hljómsveitarinnar Of Monsters and Men seldist í meira en fjörutíu þúsund eintökum á útgáfudegi í Bandaríkjunum. Meðlimir sveitarinnar, sem nú eru á tónleikaferðalagi vestanhafs, segjast vera farnir að upplifa frægðina.
"Þetta verður svakalegt ævintýri,“ segir tónlistarkonan Lay Low. Hún hitar upp fyrir hljómsveitina Of Monsters and Men á stórri tónleikaferð um Bandaríkin og Kanada í mars og apríl. Tónleikarnir verða átján talsins og verða þeir fyrstu í Los Angeles 20. mars en þeir síðustu í Toronto 12. apríl.
Úrslitakvöld Músíktilrauna fór fram í Austurbæ á laugardagskvöldið þar sem 10 hljómsveitir komu fram. Sunnlenska sveitin RetRoBot bar sigur úr býtum en hana skipa Daði Freyr Pétursson, Gunnlaugur Bjarnason, Kristján Pálmi Ásmundsson og Guðmundur Einar Vilbergsson.
Platan My Head is an Animal með hljómsveitinni Of Monsters and Men situr nú í öðru sæti á vinsældarlista Itunes í Bandaríkjunum. Platan kom út þar í landi á þriðjudag, eins og nýjasta plata rappkvendisins Nicki Minaj, sem situr í efsta sæti listans.
Of Monsters and Men er heitasta hljómsveitin á Íslandi í dag. 2011 var annað starfsár hljómsveitarinnar, en þrátt fyrir það landaði hún útgáfusamningi við Universal, umboðsmanni og kórónaði árið með gullplötu fyrir sölu á fyrstu plötunni, My Head Is an Animal. Nú vinnur hljómsveitin að því að betrumbæta plötuna fyrir útrás sem á ekkert skylt við það sem við Íslendingar tengjum við það orð.
Íslenskur námsmaður í Chicago í Bandaríkjunum hefur birt afar áhugaverða glærukynningu um hljómsveitina Of Monsters and Men. Í kynningunni fjallar hann um þær ástæður sem liggja að baki vinsældum hljómsveitarinnar og varpar hún ljósi á mikilvægt samspil internetsins og lukku.
Nýtt tónlistarmyndband með hljómsveitinni Of Monsters and Men kom út í gær. Myndbandið er við lagið "Little Talks" og er aðgengilegt á vefsíðu sveitarinnar. Tveir tenglar eru á myndbandið á síðunni, einn fyrir notendur á Íslandi og annar fyrir notendur sem staddir eru erlendis.