Charl Schwartzel frá Suður-Afríku sigraði á mótinu en fæstir muna eftir því. Klúðrið hjá McIlroy stóð upp úr þegar mótið var gert upp í fjölmiðlum.
McIlroy lærði af reynslunni og hann reis upp úr öskunni átta vikum síðar þegar hann sigraði með glæsibrag á Opna bandaríska meistaramótinu – og landaði þar með sínum fyrsta sigri á einu af risamótunum fjórum sem fram fara á hverju ári. McIlroy ætlar að læra af reynslunni og mun hann loka sig algjörlega frá því sem er að gerast í hinu daglega lífi á meðan Mastersmótið fer fram. Hann ætlar að búa til „andlega blöðru" sem hann mun dvelja í á meðan keppnin fer fram.
McIlroy fékk góð ráð frá reyndum köppum eftir lokadaginn á Mastersmótinu fyrir ári. Þar fór fremstur í flokki „Hvíti hákarlinn" Greg Norman frá Ástralíu. Ef einhver þekkir þá tilfinningu að standa uppi með ekki neitt í höndunum eftir lokadag á risamóti þá er það Norman. Hann hefur átta sinnum á ferlinum endað í öðru sæti á stórmóti – sem er reyndar ekki met. Jack Nicklaus endaði 19 sinnum í öðru sæti og Bandaríkjamaðurinn Tom Watson deilir öðru sætinu með Norman á þessum lista.
„Greg Norman hefur ávallt gefið sér tíma til þess að ráðleggja mér og hann er frábær manneskja sem vill öllum vel. Hann hafði samband við mig eftir mótið á Augusta í fyrra og gaf mér góð ráð. Eitt af þeim var að ég ætti ekki að fylgjast með því sem er að gerast fyrir utan golfvöllinn á meðan mótið fer fram. Ekki lesa blöð, horfa á sjónvarpsfréttir eða nota samskiptavefi. Ég þarf að loka mig algjörlega af og einbeita mér að golfinu og mótinu sjálfu. Ég hef verið að æfa mig í þessu og það hefur gengið vel. Norman náði góðum tökum á þessu þegar hann var á hátindi ferilsins og ég hlusta þegar hann gefur mér ráð," sagði McIlroy.
Broccoli og kjúklingur í öll mál

Í viðtali við bandaríska tímaritið Men's Health segir McIlroy að hann hafi öðlast meiri stöðugleika í golfsveiflunni eftir að hann hóf að taka á lóðunum af enn meiri krafti en áður.
McIlroy verður seint sagður „tröll að vexti" en hann er rétt um 72 kg að þyngd og 1,80 m á hæð. Hann leikur sér að því að slá 270 metra upphafshögg en aukin högglengd var ekki það sem McIlroy vildi fá út úr styrktaræfingunum. Högglengd Norður-Írans ætti að nýtast vel á Augusta en högglangir kylfingar hafa oft haft betur en þeir sem slá styttra á þessu stórmóti.
Styrktarþjálfun McIlroy hefur m.a. snúist um að fá betra jafnvægi í vöðvastyrkinn í efri hlutann en aðaláherslan var lögð á að styrkja neðri líkamshluta á borð við mjaðmir, kálfa og lærvöðva þar sem krafturinn í golfsveiflunni verður til.
Líkamsfituhlutfallið hjá McIlroy hefur lækkað mikið á síðustu mánuðum og hann hefur einnig gjörbreytt matarvenjum sínum. Kjúklingur og brokkólí er aðalrétturinn hjá einum besta kylfingi heims.
Einstakur kylfingur
Hinn reyndi kylfingur Gary Player frá Suður-Afríku spáir því að Rory McIlroy eigi eftir að vinna fleiri stórmót en Player gerði sjálfur á löngum ferli sínum. Player sigraði alls á 9 stórmótum og þar af tvívegis á Mastersmótinu. Hinn 76 ára gamli Player hefur mikla trú á Norður-Íranum. „Þessi ungi maður hefur hæfileika. Þegar hann fer að sýna meiri stöðugleika í púttunum þá á hann eftir að vinna fleiri risamót. Það eru margir með hæfileika þarna úti, þar má nefna Charl Schwartzel og Jason Day – en Rory er einstakur," sagði Player í viðtali við breska dagblaðið Daily Mail á dögunum.