Dúkkulísutískusýning á vegum Kiosk fer fram á Hótel Lind á föstudaginn kemur. Hver hönnuður hannaði sérstaka dúkkulísu í raunstærð og munu þær sýna fatnað hönnuðanna.
Tískuverslunin Kiosk er rekin af hópi fatahönnuða og ætla þeir að sýna vorlínur sínar á heldur óhefðbundinn máta. Hver hönnuður hefur hannað sérstaka dúkkulísu í raunstærð til að sýna fatnað sinn. Að frumsýningu lokinni fara dúkkulísurnar svo á flakk um miðbæinn og koma við á ýmsum skemmtilegum stöðum og verslunum.
Edda Guðmundsdóttir, fatahönnuður og einn aðstandenda Kiosk, segir hugmyndina hafa orðið til þegar hönnuðirnir hittust og vörpuðu hugmyndum á milli sín fyrir tískusýninguna.
„Ein sýndi okkur hinum gamlar dúkkulísur sem hún átti og okkur fannst hugmyndin um að gera sýningu með dúkkulísum í raunstærð skemmtileg. Hver hönnuður fékk ákveðna útgáfu af dúkkulísu og setti hana í föt og svo voru þær prentaðar út fyrir okkur," útskýrir Edda og bætir við að þar sem „sýningarstúlkurnar" séu ekki göngufærar verði sýningin meira í ætt við útstillingu en hefðbundna tískusýningu.
„Það eru allir velkomnir á sýninguna og við Kiosk-liðar verðum þarna í góðum dúkkulísupartýsgír. En ég tek fram að það er stranglega bannað að sulla niður á dúkkulísurnar."
Sýningin fer fram á Hótel Lind á Rauðarárstíg 18 og hefst klukkan 17 og stendur til klukkan 20. - sm
Dúkkulísur í stað fyrirsæta
