Vilja gera plötu með Jimi Tenor 1. mars 2012 18:00
Hjálmar eru í viðræðum við finnska tónlistarmanninn Jimi Tenor um að vinna með honum fleiri lög. Hann söng með hljómsveitinni í laginu Messenger of Bad News sem var tekið upp í fyrra. „Okkur langar að þróa það samstarf aðeins meira og hann var heitur fyrir því," segir gítarleikarinn Kiddi í Hjálmum. Inntur eftir því hvort plata sé á teikniborðinu segir hann að hún sé alla vega á óskalistanum. Hljómsveitin spilar í fyrsta sinn í Slóvakíu í sumar á tónlistarhátíðinni Pohoda. Þar stígur Emilíana Torrini einnig á svið. „Það er alltaf gaman að fara eitthvað og spila fyrir nýtt fólk," segir Kiddi. FM Belfast spilaði á sömu hátíð í fyrra. Hjálmar eru nýkomnir með tónleikabókara í Amsterdam og hann ætlar að reyna að koma þeim að í Hollandi, Belgíu og í Lúxemborg. „Við fórum á Eurosonic Festival og það kom smotterí út úr því sem er verið að vinna í núna, þar á meðal þetta." Kiddi segir það ekki auðvelt að koma íslenskri reggítónlist að erlendis. „Ég held að við séum ekki nógu svartir til að vera alvöru reggí því það eru fullt af reggíhátíðum í gangi. Ég held líka að þetta sé aðeins of mikið reggí fyrir venjulegar hátíðir." -fb
Tónlist Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira