Messi skorað jafnmikið og sóknarþríeyki Real Madrid til samans Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. desember 2012 12:30 Messi og Ronaldo. Nordicphotos/Getty
Knattspyrnukappinn Lionel Messi hefur verið á forsíðum blaða og vefmiðla um heim allan undanfarna viku. Messi bætti á dögunum 40 ára gamalt markamet Þjóðverjans Gerd Müller sem skoraði 85 mörk árið 1972. Messi hefur nú skorað 88 mörk á tímabilinu og getur enn bætt um betur. Dagblaðið Sport í Katalóníu birti í vikunni samanburð á markaskorun Argentínumannsins og sóknarþríeykis Real Madrid sem Cristiano Ronaldo, Gonzalo Higuain og Karem Benzema skipa. Messi hefur skorað 23 mörk í spænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Ronaldo hefur skorað 16 mörk, Higuain 4 mörk og Benzema þrjú. Messi hefur því skorað jafnmörg mörk og þremenningarnir til samans. Hafa verður í huga að Benzema og Higuain hafa verið töluvert frá vegna meiðsla á tímabilinu. Sport bendir hins vegar á að Lionel Messi hafi komið ungur að árum til liðsins og Barcelona ekki greitt fyrir hann krónu. Hins vegar hafi Spánarmeistararnir borgað samanlagt 147 milljónir evra (94 milljónir fyrir Ronaldo, 13 milljónir fyrir Higuain og 40 milljónir fyrir Benzema) eða sem nemur rúmum 24 milljörðum íslenskra króna. Vert er að taka fram að Sport er duglegt að halda á lofti merki Börsunga þegar vel gengur. Sömuleiðis fer dagblaðið Marca á flug þegar Real Madrid gengur allt í haginn.
Spænski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Sjá meira