Formúla 1

Útlit fyrir 20 mót á næsta ári

Birgir Þór Harðarson skrifar
Þessir eru af öllum líkindum á leið til Tyrklands.
Þessir eru af öllum líkindum á leið til Tyrklands. nordicphotos/afp
Dagatal Formúlu 1 á næsta ári hefur verið breytt örlítið til að hægt sé að koma nýjum kappakstri fyrir í miðjum júlí. Þetta, ásamt nokkrum breytingum á keppnisreglum, var staðfest í dag af alþjóðlega mótorsportráðinu.

Þýski kappaksturinn var færður um eina helgi til þess að hægt væri að halda mót einhverstaðar í Evrópu 21. júlí. Bernie Ecclestone viðraði fyrr í þessari viku fyrirætlanir sínar um að koma tyrkneska kappakstrinum aftur á dagskrá.

Árleg heimsráðstefna FIA er nú haldin í Tyrklandi. Má búast við að í lok þessarar viku verði tilkynnt um tyrkneskan kappakstur á kappakstursbrautinni í Istanbúl. Þar var síðast keppt árið 2010.

Á uppköstum af keppnisdagatali ársins 2013 voru aðeins 19 mót í stað 20 eins og í ár, vegna þess að búið var að taka frá dagsetningu fyrir kappakstur í New Jersey í Bandaríkjunum. Það varð hins vegar ljóst í október að brautin þar yrði ekki tilbúin í tæka tíð.

Keppnisreglunum hefur verið breytt þannig að nú gildir "force majure"-reglan ekki þegar bíll stoppar á brautinni eftir tímatökur. Dómarar hvers móts hafa nú leyfi til að áætla eldsneytismagnið sem hefði farið í að aka inn á þjónustusvæðið.

Lewis Hamilton og Sebastian Vettel fengu báðir að kenna á þessari reglu í sumar. Vettel ók eftirminnilega úr síðasta sæti í Abu Dhabi eftir að hafa verið refsað vegna þessa.

Ökumenn mega ekki opna afturvænginn á föstudagsæfingum á næsta ári, nema þar sem það yrði hægt í keppni. Það er gert af öryggisástæðum. Þá verða gerðar strangari öryggiskröfur og tæknileg atriði hafa útfærð.


Tengdar fréttir

Ecclestone: Ég er ekki orðinn of gamall

Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, svaraði Luca di Montezemolo, framkvæmdastjóra Ferrari-bílaverksmiðjanna, fullum hálsi eftir að hafa frétt frá Luca að hann væri orðinn of gamall til að stjórna Formúlu 1. Hann segist ekkert ætla að slaka á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×