Áfram heldur gæsaveiðin að vera góð í Gunnarsholti að því er segir á agn.is, söluvef Lax-ár. Nálega allir sem þangað hafi komið í haust hafi veitt upp í kvótann sem er tólf gæsir á byssu.
"Um helgina voru nokkrir veiðimenn í Gunnarsholti, sem vitanlega veiddu allir kvótann," segir á agn.is. "Við eigum pláss fyrir nokkrar byssur um helgina í Gunnarsholti en þar er allt bókstaflega að fyllast af gæs."
gar@frettabladid.is
Gæsirnar streyma enn inn á Gunnarsholti
