Alls komu 830 laxar á land í Elliðaánum í sumar en veiði í ánum er nú lokið. Það er um 300 löxum minna en í fyrra og um 600 löxum minna en árið 2008.
Á vef Stangveiðifélags Reykjavíkur kemur fram að veiðin hafi farið mjög vel af stað og veiðitölur verið hærri en síðasta sumar.
"Hins vegar dró mjög úr göngum upp úr miðjum júlí, og virðist sem að nokkur breyting hafi orðið á frá því að seiðasleppingum var hætt í Ellliðaánum. Kenningar eru uppi um a náttúrulegi stofninn skili sér mun fyrr en þeir laxar sem eru úr gönguseiðasleppingum. Vegna þessa séu göngur síðla júlímánaðar og í ágúst mun minni en áður enda byggja árnar laxgengd sína einvörðungu á náttúrulegri framleiðslu seiða," segir á vef SVFR.
Hér að neðan má sjá veiðitölur í Elliðaánum síðustu ár en hafa verður í huga að um aldamótin voru árnar enn að ná sér eftir kýlaveiki sem kom upp árið 1995 og þá hefur kvóti á hverja dagsstöng verið minnkaður reglulega undanfarin ár.
2012 - 830 laxar
2011 - 1.147 laxar
2010 - 1.164 laxar
2009 - 880 laxar
2008 - 1.457 laxar
2007 - 936 laxar
2006 - 900 laxar
2005 - 954 laxar
2004 - 645 laxar
2003 - 472 laxar
2002 - 478 laxar
2001 - 414 laxar
2000 - 592 laxar
830 laxar á land í Elliðaánum
