Keilismaðurinn Rúnar Arnórsson missti efsta sætið eftir annan daginn á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu í gær en hann var fljótur að breyta því í dag. Rúnar fékk fjóra fugla á fyrstu fimm holunum og er nú kominn fimm höggum undir pari.
Rúnar er eins og er með þriggja högga forskot á Þórð Rafn Gissuararson úr GR sem er á -2. Haraldur Franklín Magnús úr GR hefur leikið fyrstu sex holur dagsins á tveimur höggum undir pari eins og Þórður Rafn en Haraldur er nú í þriðja sæti á samtals einu höggi undir pari.
Sigmundur Einar Másson úr GKG var efstur eftir gærdaginn en hann hefur tapað þremur höggum á fyrstu sex holum dagsins.
Það má fylgjast með skori manna hér en eins er verið að sýna frá mótinu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hér á Vísi.
