Haraldur Franklín Magnús úr GR er nýr Íslandsmeistari í golfi en hann hafði betur í hörkukeppni við Rúnar Arnórsson úr Keili á lokadegi Íslandsmótsins í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Haraldur Franklín lék holurnar 72 á sjö höggum undir pari og lék á einu höggi betur en Rúnar.
Haraldur Franklín er tvöfaldur Íslandsmeistari í ár því hann vann einnig Íslandsmótið í holukeppni fyrr í sumar. Hann var þarna að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil.
Haraldur Franklín gerði engin mistök á lokadeginum því hann tapaði ekki höggi á hringum og tveir fuglar, á 3. og 16. holu, skiluðu honum sigrinum. Haraldur Franklín lék hringinn á 68 höggum eða tveimur höggum undir pari.
Rúnar Arnórsson lék lokadaginn á 69 höggum eða einu höggi undir pari. Þórður Rafn Gissurarson úr GR tryggði sér örugglega þriðja sætið því hann lék lokadaginn á einu höggi undir pari og því samtals á fjórum höggi undir pari.
Keppnin í dag var mjög spennandi en enginn kylfingur ógnaði þó köppunum þremur í lokahollinu.
Rúnar Arnórsson tapaði höggu strax á annarri holu og missti forystuna tímabundið til Haraldar Franklín en Rúnar svaraði því með því að ná tveimur fuglum á næstu þremur holum. Þeir félagar voru síðan jafnir á holum fimm til tólf.
Rúnar fékk fugl á þrettándu holunni og var í framhaldinu með eitt högg í forskot en allt snérist þetta síðan á sextándu holunni. Haraldur Franklín fékk fugl á henni og komst sjö höggum undir samanlagt en á sama tíma tapaði Rúnar höggi og var vþí kominn sex höggum undir par.
Lokastaðan hjá körlunum:
1. Haraldur Franklín Magnús, GR -7
2. Rúnar Arnórsson, GK -6
3. Þórður Rafn Gissurarson, GR -4
4. Andri Þór Björnsson, GR +1
5. Ólafur Björn Loftsson, NK +2
5. Kristinn Óskarsson, GS +2
7. Axel Bóasson, GK +3
7. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG +3
9. Andri Már Óskarsson, GHR +4
10. Sigmundur Einar Másson, GKG +5

