Formúla 1

Hamilton fljótastur þegar föstudagsæfingum lýkur

Birgir Þór Harðarson skrifar
Hamilton var fljótastur í vætunni í dag. McLaren-bíllin leit út fyrir að vera stöðugur miðað við hina. Ökumenn áttu stökustu vandræðum í gegnum hraðar beygjur Silverstone.
Hamilton var fljótastur í vætunni í dag. McLaren-bíllin leit út fyrir að vera stöðugur miðað við hina. Ökumenn áttu stökustu vandræðum í gegnum hraðar beygjur Silverstone. nordicphotos/afp
Lewis Hamilton var fljótastur á seinni æfingum fyrir breska kappaksturinn á Silverstone í dag. Ökumenn óku aðeins fáeina hringi vegna þess hve blaut brautin var. Kamui Kobayashi ók flesta hringi á seinni æfingunni eða 16.

Roman Grosjean á Lotus, Daniel Ricciardo á Torro Rosso, Mark Webber á Red Bull og Pedro de la Rosa á HRT settu ekki tíma þrátt fyrir að hafa ekið þó nokkra hringi til að kynnast aðstæðum.

Bruno Senna eyðilagði bíl sinn þegar hann missti stjórn á Williams-bílnum þegar hann kom út úr Chapel-beygjunni. Hann endaði með vinstri hlið bílsins í dekkjaveggnum og gat ekki ekið meir. Williamsmenn keppast nú við að púsla bílnum saman á ný svo Bruno nái að taka þátt á morgun.

Búist er við rigningu áfram á morgun þegar tímatökurnar fara fram. Keppnisdagur verður einnig blautur ef eitthvað er að marka veðurspár, þó rigningin verði léttari en hún var í dag.

Laugardagsæfingarnar hefjast klukkan níu í fyrramálið og eru í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Tímatökurnar fara svo fram á hádegi og eru líka í beinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×