Árnefnd Stangveiðifélags Keflavíkur fór fyrir nokkrum dögum norður í Skagafjörð til að sinna árvissum skyldustörfum við Hrollleifsdalsá í Skagafirði. Þegar menn höfðu uppfyllt skyldur sínar var kíkt niður í á og flugu kastað á líklegustu veiðistaðina. Reyndist töluvert magn af flottum fiski vera niður í Lóninu svokallaða en það er neðsti veiðistaður árinnar. Á land komu þrír urriðar 2-3 punda auk þess sem nokkrir vænir fiskar eltu flugur veiðimanna upp í harða land. Fiskarnir féllu allir fyrir andstreymistaktík þeirra félaga.
Á heimasíðu SVFK segir svo frá Jóni nokkrum Gunnarssyni og félögum hans sem voru við veiðar í fyrradag, en þeir vildu ganga úr skugga um hvort sjóbleikjan væri mætt. Vart þarf að segja frá því hversu rígavænar bleikjurnar eru sem venja komur sínar í þessa frábæru á.
Jóni segist svo frá: „Við fengum tvær spikfeitar og spegilsilfraðar á seinni vaktinni í Lóninu. Báðar tóku þær fluguna. Var önnur þeirra síðspikuð fjögurra punda og hin um tvö pund".
Sagðist Jón jafnframt vera í fyrsta skipti að veiða í ánni og er greinilega mjög hrifin. „Ég bjóst við miklu minna vatni og öðruvísi á. Við fórum upp að veiðistað nr. 23 og veiddum niður úr og á fullt af veiðistöðum, hverjum öðrum fallegri. Ég á örugglega eftir að koma hingað aftur," segir Jón.
Myndirnar sem fylgja fréttinni eru frá Jóni og veiðifélögum hans.
SVFK hefur á sínum snærum mörg mjög spennandi veiðisvæði:
Helstu veiðiár:
Geirlandsá
Fossálar
Reykjadalsá í Borgarfirði
Hrollleifsdalsá í Skagafirði
Jónskvísl og Sýrlækur
Grenlækur Flóðið svæði 4
Hér má nálgast frekari upplýsingar og myndir frá veiðisvæðum SVFK.
Skrá yfir laus veiðileyfi má sjá hér.
svavar@frettabladid.is
Sjóbleikjan er mætt í Hrollleifsdalsá í Skagafirði
