Tiger Woods var vægast langt frá sínu besta á Masters-mótinu í golfi en hann endaði á því að spila fjórða og síðasta hringinn á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Tiger lék hringina fjóra á 293 höggum eða fimm yfir pari.
Tiger og Rory McIlroy, annar kylfingur sem var búist við mikið af, voru jafnir í 41. sæti ásamt Aaron Baddeley.
Þetta er versti árangur Tigers á Mastersmótinu síðan 1996 að hann tók fyrst þátt 1995 en hann var þá ennþá bara áhugamaður og endaði í 41. sæti. Tiger náði ekki niðurskurðinum árið 1996.
Tiger vann Mastersmótið í fyrsta sinn tveimur árum síðar og hafði alltaf endaði meðal 22 efstu síðan þá. Tiger vann Mastersmótið einnig 2001, 2002 og 2005.
Það hefur gengið á ýmsu hjá Tiger síðustu ár en hann hafði engu að síður verið inn á topp sex á Mastersmótinu undanfarin sjö ár eða síðan að hann endaði í 22. sæti árið 2004.
Sæti Tiger Woods á Mastersmótinu:
1995 - 41. sæti
1996 - Náði ekki niðurskurðinum
1997 - Vann mótið
1998 - 8. sæti
1999 - 18. sæti
2000 - 5. sæti
2001 - Vann mótið
2002 - Vann mótið
2003 - 15. sæti
2004 - 22. sæti
2005 - Vann mótið
2006 - 3. sæti
2007 - 2. sæti
2008 - 2. sæti
2009 - 6. sæti
2010 - 4. sæti
2011 - 4. sæti
2012 - 41. sæti
