Netið myndar 8,3% af landsframleiðslu Bretlands 19. mars 2012 07:08
Netið leggur til um 8,3% af landsframleiðslu Bretland og er þetta hæsta hlutfallið meðal G-20 ríkjanna. Ný rannsókn sem unnin var af Boston Consulting Group sýnir fram á þetta en nethagkerfið í Bretlandi lagði 121 milljarð punda til landsframleiðslunnar þarlendis árið 2010. Þetta samsvarar um 2.000 pundum, eða um 400.000 krónum á hvern Breta. Þar með er netið stærra en heilbrigðisgeirinn, byggingastarfsemi eða menntunargeirinn í Bretlandi hvað þetta varðar. Meðal annars kom í ljós að mun meira er verslað á netinu í Bretlandi en í nokkru öðru af stærstu hagkerfum heimsins. Talið er að netverslunin verði orðin nær fjórðungur af allri verslun í Bretlandi árið 2016. Fram kemur í rannsókn Boston Consulting Group að mikill og hraður uppgangur verði í nethagkerfi Bretlands á næstu árum. Reiknað er með að það vaxi um 11% á ári fram til ársins 2016 og það ár verði stærð þess orðin um 221 milljarður punda eða um 44 þúsund milljarðar króna.
Mest lesið Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Hætta við yfirtökuna Viðskipti innlent Falsaði fleiri bréf Viðskipti innlent Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Viðskipti innlent Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent Engin U-beygja hjá Play Viðskipti innlent Vilja „ósýnilegar“ stöðumælasektir burt Neytendur Fleiri fréttir Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent