Blake Lively tók sig vel út í þessum skæra leðurkjól.
með vösum Jennifer Aniston var afslöppuð í leðurkjól með hendur í vösum.Leður hefur heldur betur verið að ryðja sér til rúms á tískupöllunum undanfarið og nú hefur leðrið skilað sér á rauða dregilinn. Kjólar úr þessu sterka efni eru greinilega vinsælir hjá stjörnunum, sem keppast um að skarta glansandi leðurkjólum við fín tilefni. Merki á borð við Hermés og Chloe voru með litríkt leður í bolum, kjólum, pilsum og buxum í vetrarlínum sínum fyrir komandi haust og því þess virði að halda augunum opnum fyrir fögrum leðurflíkum.
Brúnt Sænska leikkonan Malin Åkerman var glæsileg í leðurkjól með flottu sniði.tískufyrirmynd Nicole Richie hefur alltaf þótt smart til fara og fer þessi svarti leðurkjóll með háum kraga henni vel.Rautt Leikkonan Elisabeth Banks dró að sér athyglina í hárauðum kjól.Alklæðnaður Að vera klæddur i leður frá toppi til táar er vetrartískan að mati tískuhússins Hermés.