Endurreisnin eftir hrun verður dýrkeypt 28. apríl 2011 02:00 á fundi um endurreisn Íbúar í Japan hafa áhyggjur af tjóninu sem náttúruhamfarir ollu í landinu fyrir mánuði. Fréttablaðið/AP
Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s, S&P, segir að endurrreisnarstarf í Japan eftir náttúruhamfarir og kjarnorkuslys fyrir rúmum mánuði verði svo kostnaðarsamt að það kunni að hafa neikvæð áhrif á ríkisreksturinn. Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s, S&P, færði lánshæfishorfur Japans úr stöðugum í neikvæðar í gær. Fyrirtækið varaði við því að lánshæfiseinkunnir ríkisins kunni að verða lækkaðar verði ekki dregið úr halla á fjárlögum. Í mati S&P er gert ráð fyrir að endurreisnarstarfið geti numið 3,7 prósentum af landsframleiðslu næstu tvö ár. Bloomberg-fréttastofan bendir á að lánshæfishorfur Japans hafi ekki verið lækkaðar í níu ár, eða frá 2002. Þetta setji þrýsting á forsætisráðherrann Naoto Kan, sem hafi enn hvorki gert grein fyrir því hvernig endurreisnarstarfið verði fjármagnað né hvernig hann ætli að koma í veg fyrir neikvæð áhrif þess á fjárlög ríkisins. Bloomberg segir þingmenn úr öllum flokkum styðja að ríkið taki lán fyrir endurreisninni með skuldabréfasölu fremur en að skattar verði hækkaðir. - jab
Mest lesið Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Hafði betur eftir að hafa fengið of stór gleraugu í hendurnar Neytendur Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Neytendur Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira