Nauthóll verður aftur með á Food and Fun hátíðinni í ár. Gestur meistarakokkanna á Nauthól í ár verður enginn annar en Bengt Sjöström, en hann er meðal þekktustu matreiðslumanna Svía.
Sjöström hefur gert ótal matreiðsluþætti sem sýndir hafa verið í sjónvarpi og opnaði nýverið veitingastaðinn Linnéa Art Restaurant í Gautaborg sem tilnefndur var sem besti nýi veitingastaðurinn í fyrra.
Það er því vel við hæfi að hann komi til liðs við kokkana á Nauthól en Nauthóll var einmitt valinn besti nýi veitingastaðurinn árið 2010 í tímaritinu Gestgjafinn. Það eru líka alla jafna engir aukvisar sem sjá um matreiðsluna á staðnum. Eyþór Rúnarsson, yfirmatreiðslumaður á Nauthól, hefur þrátt fyrir ungan aldur gegnt hlutverki fyrirliða kokkalandsliðsins og verið einn af máttarstólpum þess síðastliðin 7 ár.

Sjöström hyggst að sögn Eyþórs leika sér með íslenskt hráefni og er íslenskur fiskur, lamb og skyr áberandi á matseðlinum sem gestum Nauthóls verður boðið upp á. Hann segir að pantanir séu þegar komnar á fullt og ljóst að það eru margir sem ekki vilja missa af matreiðslu Sjöströms.
Eins og fram hefur komið hefur Nauthóll fengið góðar undirtektir hjá höfuðborgarbúum síðan staðurinn var opnaður í byrjun síðasta árs.
„Við erum búin að stimpla okkur rækilega inn held ég á þessu fyrsta ári Nauthóls. Þó að staðurinn sé ekki alveg í alfaraleið erum við hér með frábært útsýni og náttúrufegurð sem fólk sækir í. Og svo hefur matreiðslan og hráefnið vonandi sitt að segja líka," segir Eyþór brosandi út að eyrum.