Stóryrtur formaður KÍ Halldór Halldórsson skrifar 3. febrúar 2011 10:30 Í aðsendri grein Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands, sem birt var í Fréttablaðinu mánudaginn 24. janúar sl. vandar hann ekki fremur en áður kveðjurnar til sveitarfélaganna. Hann kýs að tala niður til kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og spyr hvort sveitarstjórnarmenn séu að ganga af göflunum. Hann talar um svartsýna og sjálfumglaða sveitarstjórnarmenn þar sem margt hafi farið úrskeiðis í fjármálastjórn, menn hafi verið að gera málamyndagjörninga í starfsmannamálum og afneitun þeirra á eigin mistökum eigi sér stað. Hann segir sveitarstjórnarmenn stunda tilviljunarkennd vinnubrögð, sýna nemendum áhugaleysi, starfsfólki skóla lítilsvirðingu og að þeir semji af sér í samningum við ríkið. Fleira telur hann upp til miska fyrir þá fulltrúa sem hafa verið kosnir í lýðræðislegum kosningum af íbúum sveitarfélaga til að fara með stjórn þessara samfélagseininga. Því verður ekki leynt að mann setur hljóðan eftir slíkan reiðilestur. Hvað gengur manninum til? Nú standa yfir kjaraviðræður aðila og verður að telja að slík innkoma formanns KÍ í fjölmiðlum geti vart verið með það að markmiði að auðvelda lausn þeirra mála. Ekki vil ég trúa því að tilgangur hans sé að breyta vinsamlegum og hlutlægum kjaraviðræðum í harðvítuga kjaradeilu? Reyndar tekur hann ekki beinan þátt í þessum viðræðum enda er hann að láta af störfum á næstu vikum sem formaður KÍ og maður spyr sig hvort þetta geti virkilega verið hans lokakveðjur til sveitarstjórnarmanna þessa lands og hans lokainnlegg til samninganefnda KÍ á þessum erfiðu tímum? Í raun dæma orð fráfarandi formanns KÍ sig sjálf og eru vart svaraverð. Engu að síður setur hann fram svo stóra og illa ígrundaða fullyrðingu í greininni að ekki verður hjá því komist að leiðrétta hana. Hann segir að stærstu mistökin sem sveitarstjórnarmenn hafi gert í samningum við ríkið þegar sveitarfélögin sömdu um yfirtöku á öllum rekstri grunnskólans árið 1996 séu þegar þau hafi einungis fengið 60% af því fjármagni sem þurfti til að standa undir rekstri skóla. Þessu til stuðnings vísar hann til útreikninga Kennarasambands Íslands frá þeim tíma. Hvernig er hægt að halda slíku fram og ætlast til að einhver taki mark á sér? Hvar eru þessir útreikningar KÍ? Í samningunum um yfirtöku á öllum rekstri grunnskólans fengu sveitarfélögin allt það fjármagn sem ríkið setti í rekstur sömu þátta og sveitarfélögin yfirtóku. Ef fullyrðing formanns KÍ myndi standast þá þýddi það að ríkið hefði rekið grunnskólann með 60% fjármögnun. Hvaðan komu þá þau 40% sem upp á vantaði til að starfrækja grunnskólann? Þetta gengur einfaldlega ekki upp hjá formanninum. Til viðbótar því fjármagni sem ríkið hafði sett til grunnskólans fyrir flutning fengu sveitarfélögin aukið fjármagn m.a. til að flýta fyrir einsetningu grunnskólans, uppbyggingu og rekstri mötuneyta og til að fjármagna fjölgun kennslustunda í áföngum. Í samningnum við ríkið árið 1996 var ákvæði um að endurmeta kostnað og tekjuþörf sveitarfélaga árið 2000. Það var gert og voru bæði ríkið og sveitarfélögin sammála um að ekki væri ástæða til að breyta forsendum samningsins. Byggði sú niðurstaða m.a. á sérstakri úttekt á málinu sem endurskoðunarfyrirtækið KPMG gerði auk rannsóknar sem Ólafur Darri Andrason, núverandi hagfræðingur ASÍ, gerði. Þetta skýrist m.a. af því að þrátt fyrir að sveitarfélögin hafi veitt viðbótarfjármagni til skólanna til að auka þjónustuna styrktist útsvarsstofn þeirra svo mikið að þau höfðu góð efni á útgjaldaauka vegna bættrar þjónustu. Aftur var gerð úttekt á stöðunni af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2007. Þá kom skýrt fram að sveitarfélögin höfðu ákveðið að verja enn stærri hluta tekna sinna til grunnskólans enda hafa þau sýnt mjög mikinn metnað á þeim vettvangi. Frá árinu 1997 til 2006 hafði stöðugildum kennara og stjórnenda í grunnskólum fjölgað um 1.455 eða 43,6% og öðru starfsfólki úr 1.281 í 2.174 eða um 69,7%. Á sama tíma fjölgaði nemendum úr 42.319 í 43.875 eða um 1.556 sem er 3,7% aukning. Þetta þýðir að á þessu tímabili fjölgaði um 1,5 stöðugildi starfsmanna fyrir hvern nemanda sem bættist við. Skóli án aðgreiningar, fjölgun vikulegra kennslutíma, lægri kennsluskylda kennara, meiri sérfræðiþjónusta, aukin gæði stjórnunar og mörg fleiri verkefni sem aukið hafa gæði skólastarfsins valda þessari fjölgun með tilheyrandi kostnaði. Frábært starf kennara og stjórnenda við þróun þessarar þjónustu hefur verið mikilvægt sveitarfélögunum við að bæta skólastarfið og sinna nemendum betur en áður. Sá grunnskóli sem sveitarfélögin starfrækja í dag er allt annar og betri grunnskóli en sveitarfélögin tóku við frá ríkinu. Er þessi þróun í takti við aðra þjónustu sem sveitarfélögin hafa verið að útfæra og bæta á liðnum árum. Þau gátu það vegna tekjuaukningar í góðæristímabilinu. Nú hefur því miður brostið á kreppuástand sem einfaldlega kallar á að undið sé að einhverju leyti ofan af því sem byggt var upp og finna þarf nýtt jafnvægi. Sveitarfélögin verða að hafa tekjur til að standa undir útgjöldum vegna þjónustu. Þau hafa kallað til verka starfsmenn sína til að aðstoða við þá vinnu og við vitum öll að ekki er hægt að undanskilja kennara og skólastarfið í þeim efnum. Öll sveitarfélög reyna að sjálfsögðu eins og kostur er að hlífa skólastarfinu. Þau reyna að forgangsraða í þágu grunnþjónustunnar en það þýðir ekki að hægt sé að komast hjá því að snerta útgjaldaliði hennar. Sveitarfélögin, líkt og ríkissjóður og allur almenningur, þurfa að endurskipuleggja rekstur sinn og lækka útgjöld vegna minni ráðstöfunartekna en áður. Sveitarstjórnarfólk er áhugasamt um að starfrækja góða þjónustu. Það vill vel og það þarfnast stuðnings, samvinnu og skilnings, en ekki ósanngjarnra árása eins og fráfarandi formaður KÍ leyfir sér í fyrrgreindri blaðagrein. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halldór Halldórsson Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun