Guðmundur Þórður: Einstefna í síðari hálfleik Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. nóvember 2011 21:56 Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari. Mynd/Stefán
Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, var nokkuð sáttur með úrslitin í leikslok en viðurkenndi að hann hefði verið allt annað en sáttur í hálfleik. „Þetta var slakt af okkar hálfu (í fyrri hálfleik). Við byrjuðum ágætlega og vorum komnir fjórum mörkum yfir en misnotuðum endalaust af dauðafærum, sjö eða átta í fyrri hálfleik. Gerðum átta tæknimistök sem er óásættanlegt fyrir landsliðið." Íslenska liðið hafði frumkvæðið í hálfleiknum og hafði 2-3 marka forystu fyrri hluta hans. Þá brá Guðmundur á það ráð að skipta öllu liðinu útaf og má segja að leikur liðsins hafi hrunið í kjölfarið. „Menn voru værukærir. Það er erfitt fyrir landsliðið að gíra sig upp í svona leiki. Þeir hlustuðu vel á mig í hálfleik, ég lét þá aðeins heyra það og þeir komu miklu grimmari í síðari hálfleik. Það var einstefna," sagði Guðmundur. Hans sterkasta lið hóf leikinn í síðari hálfleik og það skilaði sér. „Ég vildi fá þetta í gang. Þeir svöruðu því mjög vel og í sjálfu sér var síðari hálfleikurinn mjög góður. Varnarlega vorum við að gera þetta eins og við viljum gera það og það er mjög jákvætt," sagði Guðmundur. Guðmundur sagði stöðuna á liðinu misjafna. Hann nefndi þó að breiddin mætti vera meiri enda vantaði sterka leikmenn í íslenska landsliðið. Björgvin Páll, Guðjón Valur og Ólafur Stefánsson voru allir fjarri góðu gamni í kvöld. Guðmundur sagði marga leikmenn úrvalsliðins hafa staðið sig vel. „Ég hef fylgst með mörgum þessara drengja. Ólafur Guðmunds stóð sig vel og Róbert Aron er mjög efnilegur handboltamaður sem á framtíðina fyrir sér ef hann fylgir því eftir. Ólafur Bjarki sömuleiðis og fleiri góðir."
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira