Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í 15. sinn á Nesvellinum í dag. Keppendur léku níu holu höggleik í morgun og klukkan eitt hefst svo Einvígið (shoot-out). Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.
Venju samkvæmt var ellefu af bestu kylfingum landsins boðið til leiks. Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er sigurvegari síðasta árs og mætir að sjálfsögðu til þess að verja titilinn.
Birgir Leifur getur orðið aðeins annar kylfingurinn í fjórtán ára sögu þessa skemmtilega móts sem nær því að vinna tvö ár í röð. Magnús Lárusson er sá eini sem hefur varið titilinn en hann vann Einvígið þrjú ár í röð frá 2004 til 2006.
Birgir Leifur er annar af tveimur kylfingum á mótinu í ár sem hafa unnið Einvígið áður en hinn er Björgvin Sigurbergsson sem vann Einvígið bæði 2001 og 2009.
Þátttakendur 2011
Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG, Klúbbmeistari GKG
Andri Þór Björnsson, GR, Klúbbmeistari GR
Axel Bóasson, GK, Íslandsmeistari karla í högleik
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, Shoot-out meistari 2010
Björgvin Sigurbergsson, GK, Klúbbmeistari GK
Ingi Rúnar Gíslason, GKJ, Klúbbmeistari GKJ
Karlotta Einarsdóttir, NK, Klúbbmeistari NK
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, Íslandsmeistari kvenna í höggleik og klúbbmeistari GR
Tinna Jóhannsdóttir, GK, Klúbbmeistari GK
Sigurvegarar frá upphafi
1997 - Björgvin Þorsteinsson
1998 - Ólöf María Jónsdóttir
1999 - Vilhjálmur Ingibergsson
2000 - Kristinn Árnason
2001 - Björgvin Sigurbergsson
2002 - Ólafur Már Sigurðsson
2003 - Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 - Magnús Lárusson
2005 - Magnús Lárusson
2006 - Magnús Lárusson
2007 - Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 - Heiðar Davíð Bragason
2009 - Björgvin Sigurbergsson
2010 - Birgir Leifur Hafþórsson
