„Þetta er frábær tilfinning. Ég ætlaði bara að vera yfirveguð á þessum lokahring og fá sem flest pör, en það var erfitt í þessum aðstæðum," sagði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir rétt eftir að hún fagnaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í höggleik kvenna í golfi á Hólmsvelli í Leiru í dag.
Ólafía, sem er í Golfklúbbi Reykjavíkur, hafði mikla yfirburði og sigraði með 9 högga mun. Tinna Jóhannsdóttir úr GK, sem hafði titil að verja endaði í öðru sæti. Ólafía var yfirveguð þegar hún fagnaði sigrinum á 18. flötinni. „Ég var ekkert ánægð með að enda þetta á bógí," bætti Íslandsmeistarinn við en hún segir að endalausar æfingar hafi skilað þessum titli.
Kristinn faðir Íslandsmeistarans var kylfusveinn hjá dóttur sinni í dag og mátti Alfreð bróðir Ólafíu sætta sig við það að hafa einfaldlega verið of seinn að óska eftir aðstoð frá pabbanum.
„Ég spurði pabba á undan hvort hann vildi vera kaddý hjá mér og ég fékk það. Ég er reyndar ekkert góð í því að borga pabba laun fyrir þetta starf en hann fær eitthvað gott núna," sagði Ólafía Þórunn.
Ólafía Þórunn: Þetta er frábær tilfinning
Sigurður Elvar Þórólfsson á Hólmsvelli í Leiru skrifar
Mest lesið

Diogo Jota lést í bílslysi
Fótbolti


Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“
Enski boltinn


Glódís mætti ekki á æfingu
Fótbolti




