Eftir 2 vaktir eru a.m.k. 9 stórlaxar komnir á land í Víðidalsá og veiddist víðsvegar um ánna. Harðeyrarstrengur, Efri Garðar, Ármót og Laxapollur gáfu t.a.m. allir fiska og er víst talsvert af laxi í Laxapolli. Laxarnir sem komu á land voru allir á bilinu 80 – 85 cm að lengd og var öllum sleppt aftur enda sleppiskylda á stórlaxi í Víðidalnum.
Skilyrði eru nokkuð erfið þar nyrðra, hiti ekki nema um 5 gráður og norðanáttin leikur við menn og málleysingja, það þarf því að hafa talsvert fyrir hverjum lönduðum laxi. Einhver hlýnun er þó í kortunum og verður líklega gaman norðan heiða þegar hitinn fer að skríða í tveggja stafa tölu.
Birt með góðfúslegu leyfi Lax-á
Flott opnun í Víðidalsá
