Þórir: Alltaf til varaplön Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. apríl 2011 18:45
Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, er bjartsýnn á að allir leikir í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla geti farið fram á réttum tíma. Veðrið hefur ekki verið með besta móti í apríl og eru vellir liðanna í deildinni í misjöfnu ástandi. Einna verst er ástandið hjá Fylki og Víkingi sem bæði eiga heimaleik á mánudagskvöldið. „Veðrið hefur að minnsta kosti ekki áhrif á undirbúning mótsins,“ sagði Þórir í samtali við Vísi en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. „Veðrið er ekki eins og við hefðum viljað hafa það í dag en við skulum sjá hvað gerist um helgina.“ Hann segir að KSÍ geti brugðist við ef einhverjir vellir verða ekki tilbúnir. „Það eru alltaf sömu varaplönin og þegar leikir á Íslandi eru annars vegar. Ef leikur getur ekki farið fram af einhverjum ástæðum þá finnum við lausnir á því. Það höfum við gert hingað til og gerum áfram.“ Opnunarleikur mótsins verður á Kópavogsvelli á sunnudagskvöldið en sá völlur er upphitaður og lítur vel út. Annars þýðir lítið annað en að bíða og sjá til hvernig næstu dagar verða. „Við skulum sjá hvað morgundagurinn og laugardagurinn beri í skauti sér. Eftir það munum við taka ákvörðun. Mér sýnist að upphafsleikur mótsins geti farið fram á réttum tíma og stað. Ég er bjartsýnn á að allir aðrir leikir í fyrstu umferðinni fari fram eins og áætlað er.“
Pepsi Max-deild karla Skroll-Íþróttir Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“