Masters: Íslenskir kylfingar hafa enn tröllatrú á Tiger Woods
Þorsteinn Hallgrímsson, golfsérfræðingur Stöðvar 2 sport, hitti nokkra íslenska kylfinga á dögunum í Hraunkoti í Hafnarfirði þar sem Mastersmótið var umræðuefnið og er greinilegt að Tiger Woods er enn ofarlega á blaði hjá flestum.
Phil Mickelson hefur titil að verja á þessu móti og í myndbandninu hér fyrir ofan má sjá ýmis flott tilþrif frá mótinu í fyrra og þar á meðal eitt af betri golfhöggum allra tíma – þar sem Mickelson sló boltann alveg upp að stöng úr ótrúlega erfiðri stöðu.
Mastersmótið hefst á fimmtudag og verður bein útsending frá öllum fjórum keppnisdögunum á Stöð 2 sport.
Tengdar fréttir

Kylfusveinn á Masters í 50 ár
Masters-mótið um helgina verður afar sérstakt fyrir Carl Jackson, kylfusvein Ben Crenshaw. Mótið um helgina verður það fimmtugasta í röðinni hjá þessum aldna heiðursmanni.

Veðbankar hafa trú á Tiger fyrir Masters
Þrátt fyrir að Tiger Woods hafi verið langt frá sínu besta að undanförnu á golfvellinum þá virðast veðbankar hafa óbilandi trú á því að hann blandi sér í baráttuna um sigurinn í fyrsta risamóti ársins í golfinu, Masters mótinu sem hefst næsta fimmtudag.

Mickelson sjóðheitur fyrir titilvörnina á Masters
Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson var sjóðheitur í gær á Houston Open mótinu sem fram fer á bandarísku PGA-mótaröðinni í Texas. Mickelson er efstur í mótinu ásamt landa sínum Scott Verplank eftir að hafa leikið á 63 höggum í gær eða níu höggum undir pari. Hann jafnaði þar með vallarmetið á Redstone vellinum í Houston.

Kviknaði í einkaþotu Lee Westwood
Breski kylfingurinn Lee Westwood komst heldur betur í hann krappann um helgina þegar einkaþota hans varð að nauðlenda er eldur kom upp í flugvélinni.

Westwood púttar á teppinu heima fyrir Masters
Enski kylfingurinn Lee Westwood æfir sig nú að kappi fyrir Masters mótið í golfi sem hefst næsta fimmtudag. Undirbúningur hans fyrir mótið felst meðal annars í því að pútta á teppi til fá tilfinningu fyrir þeim mikla hraða sem er á flötunum á Augusta National vellinum í Georgíu-fylki, Bandaríkjunum.

Mickelson fagnaði sigri í Houston
Phil Mickelson vann í dag sigur á Houston Open mótinu í golfi. Þetta var í fyrsta sinn sem hann vinnur mót síðan hann fagnaði sigri á Masters í fyrra en það hefst nú á fimmtudaginn.