Tiger Woods er bjartsýnn á að geta blandað sér í baráttuna um sigurinn á Mastersmótinu í golfi eftir að hafa leikið Augusta völlinn á einu höggi undir pari vallar á fyrsta keppnisdegi risamótsins. „Ég er aðeins sex höggum á eftir efstu mönnum og það er nóg eftir," sagði Woods í gær en hann hefur fallið hratt niður heimslistann að undanförnu og er hann í 7. sæti.
Woods hefur fjórum sinnum sigrað á þessu móti en hann er sannfærður um að hann eigi eftir að leika betur á næstu dögum. „Ég væri alveg til í að vera á þeim stað þar sem að Rory (McIlroy) er á skortöflunni, en það er löng leið þangað," sagði Tiger en hann var ánægður með púttin á fyrsta hringnum.
„Það voru mörg frábær pútt alveg við það að fara ofaní, þau snertu oft holubarminn og ég valdi oft rétta línu en hraðinn var ekki réttur. Ég er með sjálfstraust til þess að pútta vel og vonandi fer boltinn að detta ofaní holuna. Ég tel að ég hefði getað leikið á 68 eða 69 höggum. Hitastigið á að hækka næstu daga og völlurinn mun verða harðari – og holustaðsetningarnar verða erfiðari eftir því sem á líður," sagði Woods.
Staðan að loknum fyrsta keppnisdegi: Par 72:
65 Rory McIlroy, Alvaro Quiros
67 K J Choi, Y.E. Yang
68 Ricky Barnes, Matt Kuchar
69 Trevor Immelman, Charl Schwartzel, Ross Fisher, Sergio Garcia, Gary Woodland, Geoff Ogilvy, Brandt Snedeker
70 Retief Goosen, Kyung-Tae Kim, Hiroyuki Fujita, Phil Mickelson, Sean O'Hair, Paul Casey, Camilo Villegas, Rickie Fowler, Gregory Havret, Ryan Moore
71 Ryo Ishikawa, Tiger Woods, Miguel Angel Jimenez, Ryan Palmer, Stewart Cink, Angel Cabrera, Fred Couples
72 Steve Stricker, Nick Watney, Hideki Matsuyama, Adam Scott, Anders Hansen, David Toms, Heath Slocum, Jason Day, Alex Cejka, Peter Hanson, D.A. Points, Robert Karlsson, David Chung, Peter Uihlein, Jim Furyk, Luke Donald, Jhonattan Vegas, Lee Westwood
73 Zach Johnson, Jeff Overton, Bubba Watson, Jin Jeong, Jose-Maria Olazabal, Kevin Na, Anthony Kim, Ben Crane, Justin Rose, Bo Van Pelt, Jonathan Byrd, Sandy Lyle (Sco), Tim Clark, Larry Mize, Jason Bohn
74 Jerry Kelly, Charley Hoffman, Rory Sabbatini, Graeme McDowell, Dustin Johnson, Steve Marino, Bill Haas, Yuta Ikeda, Martin Laird, Ian Poulter, Edoardo Molinari
75 Francesco Molinari, Nathan Smith, Davis Love III, Lucas Glover, Lodewicus Oosthuizen, Kevin Streelman, Aaron Baddeley, Hunter Mahan, Robert Allenby, Ernie Els, Carl Pettersson, Stuart Appleby
76 Vijay Singh, Mike Weir, Lion Kim, Mark Wilson
77 Mark O'Meara, Padraig Harrington
78 Ian Woosnam, Ben Crenshaw, Martin Kaymer
79 Tom Watson
80 Arjun Atwal, Craig Stadler
83 Henrik Stenson
