Ágúst tekur tímabundið við kvennalandsliðinu í handbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2011 14:31 Ágúst Jóhannsson. Mynd/Anton
Ágúst Jóhannsson hefur verið ráðinn tímabundið þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta og mun stjórna liðinu í umspilsleikijunum við Úkraínu í sumar þar sem í boði er sæti á HM í Brasilíu í desember. Handknattleikssamband Íslands sendi frá sér fréttatilkynningu um ráðninguna í dag. Júlíus Jónasson er því hættur sem þjálfari A-landsliðs kvenna en hann hafði sýnt áhuga á að halda áfram með liðið. Júlíus var fyrsti þjálfari kvennalandsliðsins sem kom liðinu inn á stórmót en stelpurnar tóku þátt í EM í Danmörku í desember síðastliðnum. Ágúst, sem er þjálfari Levanger í Noregi, stýrir íslenska landsliðinu fyrst í þremur æfingaleikjum í Tyrklandi þar sem stelpurnar spila við Pólverja og Tyrki. Fréttatilkynning A - landslið kvennaHandknattleikssamband Íslands hefur á undanförnum vikum verið að skoða þjálfaramál A- landsliðs kvenna með tilliti til þeirra verkefna sem framundan eru. Eftir þá skoðun var tekin ákvörðun um að ráða þjálfara tímabundið eða framyfir play off leikina við Úkraínu sem fara fram 5. júní á Íslandi og 12. eða 13. júní í Úkraínu. Handknattleikssamband Íslands leitaði til Ágústs Jóhannsonar þjálfara Levanger í Noregi og náðist samkomulag við hann og félagið um að þjálfa liðið á þessu tímabili. Aðstoðurmaður Ágústs Jóhannssonar verður Einar Jónsson þjálfari kvennaliðs Fram. Fyrsta Landsliðsverkefnið eftir EM 2010 er alþjóðleg landsliðsvika sem fram fer 18. – 25. apríl 2011 og mun liðið leika þrjá landsleiki í Tyrklandi við Pólverja og Tyrki. Síðan mun liðið hefja undirbúning á Íslandi 6. maí og mun hann standa óslitin fram yfir leikina við Úkraínu. Handknattleikssamband Íslands vill jafnframt nota tækifærið og þakka Júlíusi Jónassyni og Finnboga Grétari Sigurbjörnssyni fyrir þeirra góða starf á undanförnum árum en þeim tókst sem kunnugt er, að ná þeim frábæra árangri að koma kvennalandsliðinu í fyrsta skipti í úrslit Evrópumeistaramóts.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira