Fótbolti

Robinho og Zlatan skoruðu í sigri Milan

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Robinho og Zlatan fagna marki í kvöld.
Robinho og Zlatan fagna marki í kvöld. Nordic Photos / AFP

AC Milan komst upp fyrir granna sína í Inter með 2-1 sigri á Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Það voru þeir Robinho og Zlatan Ibrahimovic sem skoruðu mörk Milan í kvöld en Ezequiel Ivan Lavezzi skoraði mark Napoli.

Napoli lék reyndar manni færri í síðari hálfleik eftir að Michele Pazienza fékk rauða spjaldið undir lok þess fyrri.

Með sigrinum komst AC Milan upp í annað sæti deildarinnar á kostnað meistaranna í Inter. AC Milan er með sautján stig en Inter er með fimmtán stig í þriðja sætinu.

Lazio er á toppnum með nítján stig að loknum átta umferðum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×