Landsliðsmaðurinn Garðar Jóhannsson var í byrjunarliði Hansa Rostock í gær er það gerði markalaust jafntefli gegn Union Berlin.
Garðari var skipt af velli á 66. mínútu. Helgi Valur Daníelsson sat allan tímann á varamannabekk Hansa.
Hansa Rostock er í 14. sæti af 18 liðum í þýsku B-deildinni.
Vel var mætt á leikinn en alls sátu 17 þúsund manns í stúkunni.