Brasilíumanninum Felipe Massa hefur ekki gengið sérlega vel í Formúlu 1 á þessu ári og féll úr leik í síðustu keppni skömmu eftir ræsingu. Hann lenti í árekstri eftir að hafa ræst óvenju aftarlega af stað í mótinu.
Massa er ekki í titilslagnum, en liðsfélagi hans Fernando Alonso er í öðru sæti í stigamótinu og í baráttu við fimm aðra um meistaratitilinn. Einhver umræða var í fjölmiðlum um að hann myndi hætta hjá Ferrari í lok ársins, en hann er með samning hjá liðunu og það stendur óbreytt.
"Jafnvel þó ég sé að ganga í gengnum erfitt tímabil og hafi náð takmörkuðum árangri í síðustu mótum, þá veit ég að ég gett reitt mig á liðið. Það hefur alltaf staðið að baki mér 100%. Sérstaklega þegar erfiðleika hefur gengið", sagði Massa á vefsíðu Ferrari samkvæmt frétt á autosport.com.
"Ég var ánægður að sjá hvað Montezemolo sagði eftir japanska kappaksturinn. Ég veit að hann hefur trú á mér og ég met það mikils. Hann skilur íþróttina vel og veit að stundum geta menn gengið í gegnum erfið tímabil. Sú staðreynd að stuðningurinn er alltaf til staðar er mikilvægur."
Massa ræsti tólfti af stað í síðustu keppni, eftir slaka frammistöðu í tímatökum á Suzuka brautinni í Japan. Hann fór útaf í fyrstu beygju eftir að hafa keyrt á Viantionio Liuzzi og sagðist hafa átt slæman sunnudag.
Massa segir að Ferrari sé í baráttu um tvo titla, þó staðan í stigakeppni bílasmiða sé erfið, en Ferrari er í þriðja sæti í stigamóti bílasmiða á eftir Red Bull og McLaren Mercedes.
"Það verða allir að leggja sig 110% fram til að ná árangri og það mun ég gera í síðustu mótunum", sagði Massa.
Hann gæti reynst hjálplegur Alonso, sem vonast til að Brasilíumaðurinn taki stig af keppinautum sínum um titilinn.