Bandaríski leikarinn Larry Hagman hafði á dögunum betur í máli gegn bandaríska stórbankanum Citigroup, sem var dæmdur til að greiða leikaranum 1,1 milljón dala, jafnvirði 120 milljóna króna, í skaðabætur.
Hagman, sem varð 79 ára fyrir mánuði, sló í gegn sem staðalskúrkurinn J.R. Ewing í sjónvarpsþættinum Dallas sem Sjónvarpið sýndi um árabil á níunda áratug síðustu aldar.
Hagman átti fé hjá dótturfélagi bankans, sem tapaði háum fjárhæðum í kreppunni. Hann sakaði stjórnendur bankans um að hafa fjárfest óvarlega og krafðist skaðabóta. - jab